Ferill 743. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1132 — 743. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um hagræðingarkröfu búvörusamninga.
Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.
Hvernig hefur hagræðingarkrafa gildandi búvörusamninga upp á 0,5% fyrstu fimm ár samningstímans en 1% næstu fimm ár á eftir komið til framkvæmda frá gildistöku samninganna?
Skriflegt svar óskast.