Ferill 780. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1184  —  780. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um stöðu umsóknar Íslands um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (ESA).

Frá Magnúsi Árna Skjöld Magnússyni.


     1.      Hver hefur þróunin verið á umsókn Íslands um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu (ESA), sbr. þingsályktun nr. 69/145, síðan svar utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra á þingskjali 1293 á 151. löggjafarþingi var birt?
     2.      Hefur bréf, sem samkvæmt fyrrnefndu svari stóð til að senda stofnuninni til að leitast eftir aðildarviðræðum, verið ritað og sent?
     3.      Hefur ráðherra látið meta ávinning af aðild Íslands að Geimvísindastofnun Evrópu með tilliti til:
                  a.      öryggisþátta í samgöngum, landvarna og eftirlits með mögulegri náttúruvá,
                  b.      faglegrar þátttöku í vísindum og rannsóknum og aðgengis íslenskra vísindamanna, stofnana og nýsköpunarfyrirtækja að styrkjakerfi og verkefnum ESA?
     4.      Hafi aðildarviðræður ekki hafist nú þegar, stendur til að fara að framangreindri ályktun Alþingis og hefja viðræður um aðild að Geimvísindastofnun Evrópu á yfirstandandi kjörtímabili?


Skriflegt svar óskast.