Ferill 696. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1224  —  696. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um villidýralög og sjávarspendýr.


     1.      Hvaða ástæða er fyrir því að frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum var fellt niður á endurskoðaðri þingmálaskrá yfirstandandi þings? Hvenær má vænta þess að ráðherra leggi frumvarpið fram?
    Fyrirhugað var að frumvarp til laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum yrði lagt fram á vorþingi 2023. Vinna við breytingar á frumvarpinu dróst hins vegar og þegar ljóst var að það yrði ekki fullunnið fyrir framlagningarfrest vorþings var ákveðið að fella það af þingmálaskrá. Gert er ráð fyrir að frumvarpið verði á þingmálaskrá næsta vetrar.

     2.      Hvaða samtal hefur átt sér stað á milli ráðuneyta um flutning málefna sjávarspendýra frá matvælaráðuneytinu yfir til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá því að ráðherra svaraði fyrirspurn þess efnis á 152. löggjafarþingi (þskj. 1130, 662. mál)?
    Ekki hefur farið fram samtal á milli ráðuneyta um flutning málefna sjávarspendýra frá matvælaráðuneytinu til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.

     3.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að málefni sjávarspendýra verði færð undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum?
    Ráðherra hefur ekki áform um að beita sér fyrir því að málefni sjávarspendýra verði færð undir lög um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.