Ferill 669. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1234  —  669. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um málskostnað Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins (ÁTVR) vegna mála gegn vefverslunum sem selja áfengi.


     1.      Hver er lögfræðikostnaður ÁTVR vegna mála sem stofnunin höfðaði gegn vefverslunum sem selja áfengi?
    Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR var kostnaður vegna þessara mála 8.274.939 kr.

     2.      Hvað var ÁTVR gert að greiða þeim aðilum sem stofnunin höfðaði mál gegn í málskostnað þegar málunum var vísað frá dómi?
    Samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR var fyrirtækinu gert að greiða Bjórlandi málskostnað að upphæð 950.000 kr. og Arnari Sigurðssyni, Sante ehf. og Santewines SAS, sameiginlega 1.650.000 kr. í málskostnað.