Ferill 763. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1321  —  763. mál.




Svar


forseta Alþingis við fyrirspurn frá Ásmundi Friðrikssyni um ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku.


    Af 3. mgr. 8. gr. og 2. málsl. 1. mgr. 57. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, leiðir að beina má fyrirspurnum til forseta á þingskjali og óska skriflegs svars „um stjórnsýslu á vegum þingsins.“ Skal fyrirspurn „vera skýr, um afmörkuð atriði og mál sem …“ varða stjórnsýslu Alþingis. Eins og rakið er í 91. gr. þingskapa er með stjórnsýslu þingsins átt við þá starfsemi sem fer fram á vegum þingsins og forseti fer með æðsta vald í, sbr. 9. gr. þingskapa. Þá er jafnframt tekið fram að undir stjórnsýslu Alþingis falli hvorki sú starfsemi sem fram fer af hálfu Alþingis sem fulltrúasamkomu þjóðkjörinna fulltrúa né starfsemi umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og rannsóknarnefnda samkvæmt lögum um rannsóknarnefndir.
    Svar forseta Alþingis við fyrirspurninni takmarkast því af þeim skilyrðum þingskapa að hún varði stjórnsýslu Alþingis og að unnt sé að svara henni í stuttu máli.

     1.      Hver er stefna Alþingis er varðar ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku? Liggur sú stefna fyrir opinberlega og ef svo er ekki, hvaða ástæður liggja þar að baki?
    Skrifstofa Alþingis hefur enn sem komið er ekki sett sér stefnu um ráðningu stafsfólks með skerta starfsorku. Könnun er hafin á skilyrðum þess að setja slíka stefnu.

     2.      Hefur Alþingi beitt sér fyrir því að stofnanir þess móti skýra stefnu við ráðningu starfsfólks með skerta starfsorku? Ef ekki, hvers vegna ekki?
    Þegar talað er um stofnanir Alþingis er almennt vísað til embættis umboðsmanns Alþingis og ríkisendurskoðanda. Um starfsemi þeirra fer samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, og lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Auk þeirra er litið á rannsóknarnefndir, sem skipaðar eru á grundvelli laga nr. 68/2011, um rannsóknarnefndir, sem stofnanir á vegum Alþingis. Umboðsmaður Alþingis, ríkisendurskoðandi og rannsóknarnefndir eru sjálfstæðar í störfum sínum þegar kemur að því að ákveða innra skipulag þeirra og verkefni. Þær falla því ekki undir stjórnsýslu Alþingis eða störf þingsins eins og áður greinir.

     3.      Hafa Alþingi og stofnanir þess sett sér tölusett markmið varðandi fjölda starfa sem henta einstaklingum með skerta starfsorku? Ef ekki, mun forseti beita sér fyrir slíkri stefnumótun?
    Skrifstofa Alþingis hefur ekki sett sér tölusett markmið um fjölda starfa sem henta einstaklingum með skerta starfsorku. Að öðru leyti vísast til þess sem fram kemur í svari í 1. lið hér að framan. Hvað viðkemur stofnunum Alþingis er vísað til svars við 2. lið fyrirspurnarinnar.

     4.      Hversu margt starfsfólk með skerta starfsorku er í hlutastarfi eða fullu starfi hjá Alþingi og stofnunum þess? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
    Sem stendur eru fjórir einstaklingar á skrifstofu Alþingis sem starfa tímabundið eða varanlega í hlutastarfi með skerta starfsorku. Hvað viðkemur stofnunum Alþingis er vísað til svars við 2. lið fyrirspurnarinnar.

     5.      Liggur fyrir mat á því hversu mörg störf eða hlutastörf, sem henta einstaklingum með skerta starfsorku, geti verið hjá Alþingi eða stofnunum þess? Svar óskast sundurliðað eftir stofnunum.
    Skrifstofa Alþingis hefur ekki lagt mat á það hversu mörg störf eða hlutastörf, sem henta einstaklingum með skerta starfsorku, geti verið hjá skrifstofu Alþingis. Hvað viðkemur stofnunum Alþingis er vísað til svars við 2. lið fyrirspurnarinnar.