Ferill 855. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1327  —  855. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um samskipti vegna greinargerðar setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf.

Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.


     1.      Var bréf sem starfsmaður fjármála- og efnahagsráðuneytisins sendi forseta Alþingis hinn 20. apríl 2022 vegna fyrirhugaðrar birtingar á greinargerð setts ríkisendurskoðanda um Lindarhvol ehf. sent með vitund og vilja ráðherra?
     2.      Er ráðherra sammála efni bréfsins?


Skriflegt svar óskast.