Ferill 874. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Prentað upp.
Þingskjal 1370 — 874. mál.
Munnlegt svar.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um græn svæði í Reykjavík.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvernig er aðgengi íbúa í Reykjavík að grænum svæðum í alþjóðlegum samanburði?
2. Eiga græn svæði undir högg að sækja í núverandi skipulagi Reykjavíkur, m.a. vegna stefnu um svokallaða þéttingu byggðar? Ef já, hvernig?
3. Hvaða áhrif hafa áform um landfyllingu í Nýja-Skerjafirði á græn svæði, líffræðilega fjölbreytni og losun gróðurhúsalofttegunda?
4. Hefur ráðherra í hyggju aðgerðir til að verja græn svæði í Reykjavík fyrir ágangi borgaryfirvalda? Ef já, hvers konar aðgerðir?
Munnlegt svar óskast.