Ferill 877. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1373 — 877. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um úthlutun byggðakvóta.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Er þess gætt við úthlutun byggðakvóta hvort viðtakendur ráði yfir meiri aflahlutdeild en sem nemur hámarksaflahlutdeild, sbr. 13. gr. laga um stjórn fiskveiða?
2. Ef svarið við 1. tölul. er jákvætt, hvernig er þá brugðist við ef í ljós kemur að viðtakandi byggðakvóta býr yfir meiri aflahlutdeild en sem nemur hámarksaflahlutdeild?
3. Ef svarið við 1. tölul. er neikvætt, hvers vegna er þess þá ekki gætt?
4. Taka stjórnvöld mið af þeim sjónarmiðum sem koma fram í áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í máli Arnar Snævars Sveinssonar og Erlings Sveins Haraldssonar, nr. 1306/2004, þegar teknar eru ákvarðanir sem lúta að stjórn fiskveiða og úthlutun byggðakvóta?
Skriflegt svar óskast.