Ferill 892. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1394 — 892. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um stýrihóp og sérfræðingateymi um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu.
Frá Jóhanni Páli Jóhannssyni.
Hvers vegna á enginn öryrki eða fulltrúi frá ÖBÍ réttindasamtökum sæti í stýrihópi og sérfræðingateymi ríkisstjórnarinnar um heildarendurskoðun á örorkulífeyriskerfinu?
Skriflegt svar óskast.