Ferill 733. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1401  —  733. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um aðgengi að túlkaþjónustu.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Telur ráðherra að ákvæði 2. mgr. 9. gr. laga nr. 61/2011, um stöðu íslenskrar tungu og íslensks táknmáls, um að stjórnvöld skuli leitast við að tryggja að sá sem skilur ekki íslensku geti fengið úrlausn erinda sinna og tileinkað sér efni skjala og skilríkja sem skipta hann máli sé nægilega uppfyllt í hvívetna hjá þeim stofnunum sem heyra undir ráðuneytið?

    Ákvæði 9. gr. laga nr. 61/2011 fjallar um túlkun og táknmálstúlkun hjá stjórnvöldum en í 2. mgr. ákvæðisins segir að stjórnvöld skuli leitast við að tryggja að sá sem ekki skilur íslensku geti fengið úrlausn erinda sinna og tileinkað sér efni skjala og skilríkja sem skipta hann máli. Í athugasemdum í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 61/2011 segir um fyrrnefnt ákvæði að rétt sé og eðlilegt að stjórnvöld meti það hverju sinni hvernig skuli staðið við beitingu ákvæðis 1. mgr., svo sem hvort starfsmenn geti leyst úr málum sjálfir eða kalla þurfi til túlk. Af ákvæðinu leiðir að gert er ráð fyrir að stjórnvöld leitist við að koma til móts við þarfir þeirra sem ekki skilja íslensku. Þá þarf einnig að hafa í huga þær kröfur sem leiða af ákvæðum stjórnsýslulaga, svo sem um leiðbeiningarskyldu og rannsóknarskyldu.
    Í áliti umboðsmanns Alþingis nr. 9938/2018 er fjallað um stöðu einstaklinga sem ekki eru mæltir á íslensku í samskiptum þeirra við stjórnvöld. Þar segir m.a. orðrétt: „Hvað sem þessu líður verður ekki fram hjá því litið að sá lagagrundvöllur sem stjórnvöld búa við hér á landi um þessi mál leiðir til þess að almennt eiga einstaklingar ekki beinan og skýran rétt að lögum til þess að eiga í samskiptum við stjórnvöld á öðrum tungumálum en íslensku og þar með á því tungumáli sem þeir óska eða skilja, fyrir utan norræna ríkisborgara sem byggja rétt sinn á norrænum samningum þess efnis. […] Málsmeðferð stjórnvalda þarf því m.a. að taka mið af því að tryggja réttindi borgaranna sem eru undirliggjandi hverju sinni. Það verður almennt ekki gert nema stjórnvöld meti hverju sinni hvort þörf sé á aðstoð túlks, hvaða tungumál skal nota í samskiptum þannig að aðili geti skilið það sem fram fer og efni svara sem stjórnvöld láta frá sér, hvaða hagsmunir og réttindi eru undir hverju sinni og þá hversu langt skyldur þeirra ná í þessu sambandi, […].“ 1
    Í þeim lögum sem falla undir málefnasvið dómsmálaráðuneytisins eru til staðar nokkrar sérreglur sem leggja ríkari skyldur á stofnanir þegar kemur að túlkaþjónustu. Má í því samhengi nefna lög um fullnustu refsinga, nr. 15/2016, lög um útlendinga, nr. 80/2016, og lög um meðferð sakamála, nr. 88/2008. Í 3. mgr. 54. gr. fullnustulaga segir að erlendur fangi eigi rétt á túlk þegar honum er gerð grein fyrir réttindum sínum og skyldum í afplánun sé þess þörf, og jafnframt eigi fangi rétt á að hafa samband við lögmann sinn með aðstoð túlks þegar þurfa þykir.
    Í lögum um útlendinga eru nokkrar sérreglur um túlkaþjónustu. Í ákvæði 11. gr. er fjallað um leiðbeiningarskyldu og segir í b-lið 2. mgr. að útlendingi í máli vegna umsóknar um alþjóðlega vernd skuli m.a. leiðbeint um rétt sinn til að njóta aðstoðar túlks á stjórnsýslustigi máls. Segir í 28. gr. um viðtöl við umsækjendur um alþjóðlega vernd að túlkur skuli vera viðstaddur viðtal nema umsækjandi afþakki sérstaklega slíka þjónustu. Í 3. mgr. 30. gr. laganna segir að útlendingur sem sótt hefur um alþjóðlega vernd eigi rétt á aðstoð túlks við meðferð málsins nema hann afþakki sérstaklega slíka þjónustu. Stjórnvald skuli meta hverju sinni hvort leitað skuli aðstoðar túlks hér á landi eða erlendis með þeim miðlum sem henta, t.d. í síma, tölvu eða með annars konar fjarskiptatæki. Segir í 4. mgr. sama ákvæðis að sama eigi við í samskiptum umsækjanda við talsmann sé það nauðsynlegt. Að lokum er fjallað um aðstoð túlka í 31. gr. laganna sem fjallar um hagsmunagæslu barna. Í 3. mgr. segir að við störf sín skuli starfsmaður barnaverndarþjónustu taka tillit til þjóðernis, kyns, tungumáls og trúar og menningarlegs uppruna barnsins, t.d. með því að tryggja fullnægjandi samskipti við barnið með aðstoð túlks.
    Í lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, koma fram sérreglur um túlkaþjónustu sem eru einnig hluti af kröfunni um réttláta málsmeðferð. Ákvæði 1. mgr. 12. gr. sakamálalaga kveður á um að þingmálið sé íslenska. Í 1. málsl. 2. mgr. segir svo að gefi maður skýrslu fyrir dómi sem kann ekki íslensku nægilega vel skuli ákæruvaldið sjá um að kalla til löggiltan dómtúlk. Í 5. mgr. er fjallað um skilyrði sem aðilar þurfa að uppfylla til að túlka fyrir dómi og þar segir einnig að dómari ákveði þóknun til handa viðkomandi og greiðist þóknunin og annar kostnaður vegna starfa viðkomandi úr ríkissjóði.
    Ráðuneytið telur ekki tilefni til annars en að ætla að þær stofnanir sem heyra undir ráðuneytið hagi meðferð mála í samræmi við ákvæði laga nr. 61/2011, stjórnsýslulög og sérákvæði laga eftir atvikum og hafi í huga þau sjónarmið sem dregin eru fram í tilvitnuðu áliti umboðsmanns Alþingis.

1    UA 13. júlí 2020 (9938/2018), bls. 27-28.