Ferill 829. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1428 — 829. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Jóhanni Páli Jóhannssyni um skýrslubeiðni.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvernig miðar vinnu ráðuneytisins vegna skýrslubeiðni um áhrif heimilisofbeldis við úrskurð um umgengni sem samþykkt var á Alþingi þann 19. október 2022 en var áður flutt á 152. löggjafarþingi? Verður skýrslunni skilað fyrir 1. júní 2023 eins og mælt er fyrir um í beiðninni?
Vinnu ráðuneytisins vegna skýrslubeiðninnar miðar vel. Stefnt er að því að skila skýrslunni fyrir 1. júní nk., eins og mælt er fyrir um í beiðninni.