Ferill 919. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1440 — 919. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um heildartekjur hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hverjar eru heildartekjur hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu í samanburði við önnur OECD- og EES-lönd?
2. Hver eru heildarútgjöld hins opinbera sem hlutfall af landsframleiðslu í samanburði við önnur OECD- og EES-lönd að frátöldum útgjöldum til varnarmála og leiðrétt fyrir greiðslu almannatrygginga þannig að tekið sé tillit til ólíkrar fjármögnunar lífeyriskerfa milli landa?
Skriflegt svar óskast.