Ferill 950. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1484  —  950. mál.




Fyrirspurn


til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um aðgerðir Háskóla Íslands gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi.

Frá Eyjólfi Ármannssyni.


     1.      Hve margar ábendingar eða kvartanir hafa borist Háskóla Íslands um meint einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanna skólans á ári hverju, árin 2016–2023? Svar óskast sundurliðað eftir fræðasviðum.
     2.      Hve oft hefur Háskóli Íslands brugðist við slíkum ábendingum eða kvörtunum, sbr. 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, á umræddu tímabili?
     3.      Hve oft hefur mat á aðstæðum leitt í ljós rökstuddan grun um einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða ofbeldi af hálfu starfsmanns Háskóla Íslands á umræddu tímabili? Til hvaða aðgerða hefur verið gripið í þeim tilvikum?


Skriflegt svar óskast.