Ferill 957. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1494 — 957. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006 (hnúðlax).
Frá matvælaráðherra.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 2. málsl. 3. mgr. 27. gr. er veiðifélögum og veiðiréttarhöfum, þar sem ekki eru starfandi veiðifélög, heimilt að veiða hnúðlax (Oncorhynchus gorbuscha) með ádráttarnetum árin 2023, 2024 og 2025. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um veiðar á hnúðlaxi, m.a. um leyfisveitingar, skráningu, sýnatökur og aðra framkvæmd veiða.
2. gr.
Greinargerð.
Frumvarp þetta er samið í matvælaráðuneytinu en með því eru lagðar til tilteknar breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006. Með frumvarpinu er áformað að lögfesta tímabundið ákvæði til bráðabirgða til að bregðast við hnúðlaxi sem kann að koma í íslenskar ár og vötn á gildistíma ákvæðisins. Með bréfi, dags. 8. ágúst 2022, skipaði ráðherra starfshóp til að kanna stöðu hnúðlax og koma með tillögur til ráðherra um aðgerðir og lagabreytingar. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum frá matvælaráðuneytinu, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun og Landssambandi veiðifélaga (LV). Frumvarpið er unnið í samvinnu við starfshópinn.
2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
Síðustu ár hefur orðið vart mikillar aukningar hnúðlaxa í íslenskum ám. Hnúðlax/bleiklax (Oncorhynchus gorbuscha) er ein tegund Kyrrahafslaxa. Náttúruleg heimkynni tegundarinnar eru við norðanvert Kyrrahaf og Norður-Íshaf. Hnúðlax var fyrst fluttur til ræktunar í ám á Kólaskaga (Rússlandi) á sjötta áratugnum Aðskildir stofnar eru á oddaári og jöfnu ári, og er oddaársstofninn mun stærri. Hér á landi varð fyrst vart við hnúðlax 1960.
Líkur eru til að hnúðlax og framandi tegundir er koma í íslenskt ferskvatn geti haft neikvæð vistfræðileg áhrif á aðra stofna laxfiska í íslenskum ám. Nánast er talið útilokað að hægt verði að fjarlægja hnúðlax alfarið og er þetta nýr veruleiki í ám og vötnum landsins.
Frá árinu 2015 hefur fjöldi hnúðlaxa aukist verulega og er tilvist hans og hrygning nú staðfest í mörgum ám hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun. Búast má við að stofnstærð hnúðlaxa komi til með að aukast hér á landi á komandi árum. Í kjölfar fjölgunar hnúðlaxa tóku veiðifélög að sækja um leyfi til að stemma stigu við fjölda hnúðlaxa. Í ljós kom að ekki var til staðar lagaheimild til þess að veita leyfi til veiða í ádráttarnet þar sem slík veiðarfæri eru ekki leyfileg til laxveiða.
Hnúðlax gekk í miklum mæli upp í íslenskar ár árið 2021. Atlantshafslax gengur að mestu leyti upp í árnar fyrir 15. júlí en hnúðlax fer ekki að ganga upp í árnar fyrr en eftir þann tíma. Hnúðlaxinn hefur þann eiginleika að stofnar hans eru sterkari á oddatölum en sléttum tölum og má því búast við að sterkur stofn gangi upp í íslenskar ár sumarið 2023. Miðað við núgildandi lög getur ráðherra ekki sett reglugerð sem heimilar notkun netalagna, fyrirdráttar eða annarra aðferða til að hefta útbreiðslu hnúðlaxa. Með tilkomu hnúðlaxa þarf að bregðast við með nýjum lagaheimildum sem ekki eru í gildandi lögum.
3. Meginefni frumvarpsins.
Með frumvarpinu er lagt til að bætt verði við lög um lax- og silungsveiði nýju bráðabirgðaákvæði um að veiðifélögum sé heimilt að veiða hnúðlax (Oncorhynchus gorbuscha) árin 2023, 2024 og 2025. Ráðherra getur með reglugerð sett nánari reglur um veiðar á hnúðlaxi, m.a. um leyfisveitingar, skráningu, sýnatökur og aðra framkvæmd veiða.
4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
Frumvarpið var ekki talið gefa tilefni til sérstakrar skoðunar á samræmi við stjórnarskrá. Um er að ræða bráðabirgðaákvæði með gildistíma í þrjú ár en að þeim tíma liðnum verður það tekið til endurskoðunar. Þar er gert ráð fyrir að um verði að ræða sérstaka lagaheimild til veiðanna sem gildir fyrir veiðifélög og veiðiréttarhafa, þar sem ekki eru starfandi veiðifélög, til að hægt verði að bregðast við hnúðlaxi í íslenskum ám. Ekki verður séð að samþykkt frumvarpsins hafi áhrif á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
5. Samráð.
Við gerð frumvarpsins var haft samráð við Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun og Landssamband veiðifélaga. Áform um lagasetninguna höfðu áður verið kynnt í samráðsgátt (mál nr. S-213/2022). Umsagnir um áform um lagasetninguna bárust frá Náttúrufræðistofnun Íslands, tveimur félögum og tveimur einstaklingum. Þessir aðilar telja jákvætt að stefnt sé að lagabreytingunni, telja útbreiðslu hnúðlaxins áhyggjuefni og nauðsynlegt að tilvist og aukning hnúðlaxins verði könnuð til hlítar ásamt öðrum framandi tegundum í fersku vatni. Frumvarpið var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda (mál nr. S-62/2023) og einnig var vakin athygli helstu hagsmunaaðila á því að það væri þar til kynningar. Engar umsagnir bárust.
6. Mat á áhrifum.
Frumvarpið hefur áhrif á veiðifélög, veiðiréttarhafa, einstaklinga og lögaðila sem stunda veiðar á grundvelli þessara laga. Megintilgangur þess er að lögfesta heimildir til veiða á hnúðlaxi við tilteknar aðstæður, með tilteknum veiðarfærum og að uppfylltum tilteknum skilyrðum.
Verði frumvarp þetta að lögum verða veiðar á hnúðlaxi heimilar að uppfylltum tilteknum skilyrðum og virkja verður eftirlit Fiskistofu með veiðunum.
Samþykkt frumvarpsins hefur áhrif á störf og verkefni matvælaráðuneytisins, Fiskistofu og Hafrannsóknastofnunar. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er hins vegar ekki gert ráð fyrir að það hafi áhrif á tekjur ríkissjóðs þar sem engin gjaldtökuákvæði eru í frumvarpinu. Þá er ekki gert ráð fyrir að kostnaður Fiskistofu eða Hafrannsóknastofnunar aukist við lögfestingu frumvarpsins en framkvæmd þess ákvæðis sem lagt er til á tilteknu tímabili til að verði lögfest fellur að öðrum verkefnum stofnananna. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er hvorki gert ráð fyrir að það hafi áhrif á útgjaldaramma þessa málaflokks matvælaráðuneytisins í fimm ára fjármálaáætlun né í fjárlögum.
Eftirliti með veiðunum verður sinnt af Fiskistofu og fellur undir aðra starfsemi stofnunarinnar, sbr. 2. gr. laga um Fiskistofu, nr. 36/1992, og 4. gr. laga um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.
Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Með bráðabirgðaákvæði til þriggja ára gefst tækifæri til að rannsaka hvernig og hvort hægt er að eyða eða fækka hnúðlaxi í ám.
Um 2. gr.