Ferill 964. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1508 — 964. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um úrræði til að komast á vinnumarkað.
Frá Evu Sjöfn Helgadóttur.
1. Er unnið að því í ráðuneytinu að efla starfsþátttöku þeirra einstaklinga sem falla ekki undir starfsendurhæfingarúrræði VIRK en hafa ekki tekið þátt á vinnumarkaði í lengri tíma vegna veikinda eða stoðkerfisvandamála?
2. Er unnið að því í ráðuneytinu að fjölga hlutastörfum eða stuðla að fjölgun hlutastarfa fyrir einstaklinga með skerta starfsgetu? Ef svo er, hvernig er sú vinna?
3. Hvernig hyggst ráðuneytið stuðla að því að fólk með skerta starfsgetu sem er ekki á vinnumarkaði komist aftur á vinnumarkað?
4. Hversu margir starfsmenn ráðuneytisins eru með skerta starfsgetu?
Skriflegt svar óskast.