Ferill 966. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1510  —  966. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um lánshæfismat Íslands.

Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.


     1.      Tekur ráðherra undir það mat seðlabankastjóra að lánshæfismat Íslands sé of lágt?
     2.      Telur ráðherra að lánskjör Íslands séu nægilega góð? Ef ekki, hverjar telur hann ástæður þessara slæmu lánskjara Íslands vera?
     3.      Hefur ráðherra sett sér markmið um að fá betra lánshæfismat nú þegar fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028 hefur verið lögð fram?


Skriflegt svar óskast.