Ferill 621. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1546 — 621. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Helgu Völu Helgadóttur um viðbrögð við vanvirðandi framkomu af hálfu ráðherra eða ráðuneytisstjóra og sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn ráðuneyta.
Starfsmenn ráðuneytisins geta leitað til næsta yfirmanns, trúnaðarmanna og mannauðsstjóra ráðuneytisins. Þá stendur starfsmönnum til boða að hafa samband við sérfræðinga hjá Attentus en ráðuneytið er með samning við fyrirtækið vegna ýmissa mannauðsmála. Stefna stjórnarráðsins í EKKO-málum hefur verið kynnt fyrir starfsfólki og vinnur ráðuneytið að markmiðum stefnunnar sem eru að tryggja að úrræði séu til staðar og stuðla að forvörnum og verkferlum í samræmi við ákvæði laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, og reglugerð nr. 1009/2015, um aðgerðir gegn EKKO á vinnustöðum.
2. Hefur ráðuneytið gert samning um sálfræðiþjónustu fyrir starfsmenn sl. 5 ár? Ef svo er, hvert var tilefni slíks samnings/samninga og hver var kostnaður af honum/þeim? Svör óskast sundurliðuð eftir málefnasviðum ráðuneytisins í ljósi þeirra breytinga sem gerðar voru á ráðuneytunum í fyrra.
Ráðuneytið hefur ekki gert samning vegna sálfræðiþjónustu sérstaklega fyrir starfsmenn. Ráðuneytið hefur gert samning við Attentus vegna ýmissa mála sem tengjast mannauðsmálum ráðuneytisins og undirstofnana en sá samningur er ekki vegna sálfræðiþjónustu. Starfsmönnum stendur til boða að fá viðtal við sálfræðing, ýmist í gegnum Attentus eða hjá öðrum sálfræðingi, sé óskað eftir slíku.
3. Hver er útlagður kostnaður ráðuneytisins af kaupum á sálfélagslegum stuðningi við starfsfólk vegna vanlíðunar og/eða álags á vinnustað sl. 5 ár? Svar óskast sundurliðað eftir málefnasviðum ráðuneytisins í ljósi þeirra breytinga sem gerðar voru á ráðuneytunum í fyrra.
Sálfræðilegur stuðningur við starfsfólk er ekki sérstaklega sundurliðaður eftir málefnasviðum ráðuneytisins en kostnaður vegna sálfræðiþjónustu frá árinu 2018 hefur verið samtals 488.968 kr.