Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1560 — 706. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ágústi Bjarna Garðarssyni um tjón árin 2018–2022.
1. Hversu mörg tjón voru skráð hjá tryggingafélögum á Íslandi árin 2018–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, tryggingafélögum og tjónaflokkum.
2. Hvað greiddu tryggingafélögin út háar fjárhæðir vegna tjóna árin 2018–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, tryggingafélögum og tjónaflokkum.
Við vinnslu svarsins óskaði ráðuneytið eftir upplýsingum frá Seðlabanka Íslands.
Vísað er í neðangreinda töflu frá Seðlabanka Íslands sem byggist á reglulegum gagnaskilum innlendra vátryggingafélaga til Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands. Vátryggingagreinar eru skv. viðauka I í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 2015/35/EB sem innleidd er með reglugerð nr. 55/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.
Fjárhæðirnar fyrir greiddar bætur eru heildargreiðslur á hverju almanaksári vegna allra tjónsára.
Í svörum Seðlabankans kom fram að hann telur sér ekki fært að sundurliða svörin eftir tryggingafélögum.
| 2018 | 2019 | 2020 | 2021 | |
| Vátryggingagrein (skaðatryggingar) | Fjöldi tilkynntra tjóna/krafna |
|||
| vátrygging vegna sjúkrakostnaðar | 30 | 31 | 30 | 49 |
| vátrygging vegna tekjuverndar | 2.679 | 3.175 | 2.638 | 2.659 |
| atvinnuslysatrygging | 1.199 | 1.230 | 1.212 | 1.211 |
| ábyrgðartrygging ökutækja | 11.878 | 11.414 | 8.388 | 9.995 |
| aðrar ökutækjatryggingar | 7.509 | 7.412 | 6.509 | 7.827 |
| sjó-, flug- og farmtryggingar | 585 | 460 | 322 | 230 |
| vátrygging vegna bruna og annars eignatjóns | 7.137 | 7.326 | 7.021 | 6.241 |
| almenn ábyrgðartrygging | 1.161 | 1.108 | 1.178 | 1.371 |
| Vátryggingagrein (skaðatryggingar) | Greiddar bætur |
|||
| vátrygging vegna sjúkrakostnaðar | 8.440.951 | 11.523.448 | 8.096.507 | 6.591.735 |
| vátrygging vegna tekjuverndar | 2.732.380.686 | 2.629.432.549 | 2.461.971.299 | 2.416.059.371 |
| atvinnuslysatrygging | 2.735.519.195 | 2.352.465.753 | 2.920.837.325 | 2.764.615.348 |
| ábyrgðartrygging ökutækja | 18.514.700.839 | 16.972.360.572 | 18.455.220.821 | 19.501.663.911 |
| aðrar ökutækjatryggingar | 7.683.011.788 | 7.773.014.271 | 7.753.797.391 | 8.202.452.037 |
| sjó-, flug og farmtryggingar | 2.066.388.355 | 2.826.612.779 | 2.744.457.392 | 1.312.691.211 |
| vátrygging vegna bruna og annars eignatjóns | 10.774.683.614 | 9.762.401.948 | 11.223.840.172 | 10.546.753.402 |
| almenn ábyrgðartrygging | 2.537.733.047 | 2.494.485.678 | 2.295.055.571 | 2.755.867.318 |
Vátryggingagrein skv. viðauka I í framseldri reglugerð framkvæmdastjórnar ESB nr. 2015/35/EB sem innleidd er með reglugerð nr. 55/2022 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um vátryggingastarfsemi og vátryggingasamstæður.
Fjöldi tilkynntra tjóna á því almanaksári sem tilgreint er, óháð tjónsári og hvort bætur séu greiddar.
Greiddar bætur fyrir tjón miðað við almanaksár sem greitt er, óháð tjónsári.