Ferill 990. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1573 — 990. mál.
Fyrirspurn
til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um kínverska rannsóknamiðstöð.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hver er aðkoma íslenskra stjórnvalda að rekstri rannsóknamiðstöðvar sem Heimskautastofnun Kína (PRIC) rekur á Kárhóli? Var formlegt samstarf íslenskra og kínverskra stjórnvalda forsenda þess að af uppbyggingunni gæti orðið?
2. Hvaða eftirlit hafa stjórnvöld almennt með starfsemi miðstöðvarinnar?
Skriflegt svar óskast.