Ferill 651. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1581 — 651. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Indriða Inga Stefánssyni um loftbyssur.
1. Hvaða lög og reglur gilda um notkun og meðferð loftbyssa? Samræmast þær reglur að mati ráðherra meintri hættu sem af loftbyssum stafar?
Um notkun og meðferð loftbyssa gilda vopnalög, nr. 16/1998, og reglugerð nr. 787/1998 um skotvopn, skotfæri o.fl., með síðari breytingum. Loftbyssur teljast til skotvopna samkvæmt vopnalögum en með skotvopni í lögunum er átt við vopn eða tæki sem hægt er með sprengikrafti, samanþjöppuðu lofti eða á annan sambærilegan hátt að skjóta úr kúlum, höglum eða öðrum skeytum. Til þess að geta fengið leyfi til þess að eiga loftbyssur þarf viðkomandi að vera með skotvopnaleyfi og að auki að hafa haft svokölluð aukin skotvopnaréttindi í eitt ár. Slík vopn er svo aðeins heimilt að nota í íþróttaskotfimi hjá viðurkenndu skotfélagi. Jafnframt er heimilt að veita þeim sem ekki eru með skotvopnaleyfi og þeim sem ekki hafa náð 20 ára aldri leyfi til að nota slík skotvopn til æfinga og keppni undir stjórn skotstjóra.
Víða í Evrópu er heimilt að eiga ákveðnar tegundir loftbyssa án þess að hafa leyfi en ekki hefur verið tekin ákvörðun um að heimila slíkt hér á landi. Augnskaðar vegna notkunar slíkra vopna hafa verið talsvert margir og því er að mörgu að hyggja áður en slík ákvörðun yrði tekin.
2. Hefur ráðherra í hyggju að auka með einhverjum hætti möguleika ungs fólks til að stunda skotíþróttir með loftbyssum án þess að til þess þurfi skotvopnaleyfi?
Til þess að fá skotvopnaleyfi hér á landi þarf viðkomandi m.a. að vera orðinn 20 ára. Heimild hefur verið til þess að nota ákveðin skotvopn til íþróttaiðkunar hér á landi fyrir einstaklinga á aldrinum 15 til 20 ára. Í dómsmálaráðuneytinu hefur verið unnið frumvarp að breytingum á vopnalögum sem stefnt er að að verði lagt fram á vorþingi 2023.
Með frumvarpinu er meðal annars stefnt að því að bæta við flokki um loftbyssur, þannig að loftbyssur allt að 7,5J falli í annan flokk heldur en kraftmeiri og stærri skotvopn af því tagi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að heimilt yrði að sækja um leyfi fyrir slíkum vopnum mjög fljótlega eftir að skotvopnaleyfi hefur verið veitt, að öðrum skilyrðum uppfylltum. Verði frumvarpið að lögum er í kjölfarið stefnt að því að endurskoða ákvæði reglugerðarinnar um skotvopn og verður þá skoðað hvort til greina geti komið að lækka þann aldur sem nú þarf til til þess að fá að nota loftbyssur allt að 7,5J.