Ferill 998. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1583  —  998. mál.




Fyrirspurn


til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um bann við olíuleit.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvaða ástæður eru fyrir því að ekki náðist að leggja fram frumvarp um bann við olíuleit í september sl., líkt og boðað var í þingmálaskrá sem birt var 13. september 2022?
     2.      Hvaða ástæður eru fyrir því að ekki náðist að leggja frumvarpið fram í mars sl., líkt og boðað var þegar þingmálaskrá var uppfærð í desember og ítrekað þegar þingmálaskráin var endurskoðuð í janúar?
     3.      Hvenær áformar ráðherra að leggja téð frumvarp fram?


Munnlegt svar óskast.