Ferill 1025. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1634 — 1025. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aðgengi að heilbrigðisþjónustu í Kjósarhreppi.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hvenær mun foreldrum nýfæddra barna í Kjósarhreppi bjóðast heimavitjanir hjúkrunarfræðings í ung- og smábarnavernd, rétt eins og öðrum nýbökuðum foreldrum sem falla undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins?
2. Hvenær munu íbúar Kjósarhrepps geta notið hjúkrunar- og endurhæfingarþjónustu í heimahúsi allan sólarhringinn, alla daga vikunnar, sem Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veitir öðrum íbúum sem falla undir hana?
Skriflegt svar óskast.