Ferill 1027. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1636 — 1027. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um samskipti vegna fjárhagsstöðu Landhelgisgæslu Íslands.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hvaða daga árið 2022 sendi ráðuneytið minnisblað eða aðrar upplýsingar til Landhelgisgæslu Íslands um fjárhagsstöðu stofnunarinnar miðað við málaskrá eða dagsetningar tölvubréfa?
2. Hvaða daga árið 2022 sendi Landhelgisgæsla Íslands minnisblað eða aðrar upplýsingar til ráðuneytisins um fjárhagsstöðu stofnunarinnar miðað við málaskrá eða dagsetningar tölvubréfa?
3. Fékk ráðuneytið upplýsingar fyrir 5. desember 2022 um fjárhagsstöðu Landhelgisgæslu Íslands sem skrá hefði átt skv. 11. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011, en minnisblað um fjárhagsstöðuna er dagsett 5. desember 2022?
Skriflegt svar óskast.