Ferill 1032. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1650 — 1032. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um biðtíma eftir sjúkrabíl og sjúkraflugi.
Frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.
1. Hver var meðalbiðtími eftir sjúkrabíl í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum og flokkað eftir F1-, F2-, F3- og F4-útköllum?
2. Hver var lengsti biðtími eftir sjúkrabíl í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum og flokkað eftir F1-, F2-, F3- og F4-útköllum?
3. Hver var meðalbiðtími eftir sjúkraflugi í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum?
4. Hver var lengsti biðtími eftir sjúkraflugi í hverju heilbrigðisumdæmi á tímabilinu 2017–2022, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.