Ferill 1033. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1652 — 1033. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um heimilislækna.
Frá Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.
1. Hver var meðalbiðtími eftir heimilislækni á hverri heilsugæslustöð árin 2017–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og því hvort um er að ræða viðtal eða símatíma.
2. Hversu margir höfðu heimilislækni og hversu margir voru án hans árin 2017–2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum og heilsugæslustöðvum.
Skriflegt svar óskast.