Ferill 793. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1660  —  793. mál.




Svar


umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Höllu Signýju Kristjánsdóttur um landtöku skemmtiferðaskipa.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
    Hyggst ráðherra leggja til bann við landtöku skemmtiferðaskipa utan hafna á Íslandi? Ef ekki, hver eru rökin fyrir því?

    Samhliða fjölgun skemmtiferðaskipa hefur umræða um landtöku þeirra utan hafna verið að aukast. Rétt er að skoða leiðir til að stýra slíkri landtöku betur en ekki stendur til að leggja almennt bann við landtöku skemmtiferðaskipa utan hafna á Íslandi. Ljóst er að komur skemmtiferðaskipa til landsins skipta töluverðu máli fyrir ferðaþjónustuna og ýmis sveitarfélög á landinu og að landtaka þeirra er ein af „vörunum“ sem skemmtiferðaskipin bjóða upp á hér við land.
    Mörg þessara skipa sigla umhverfis landið og bjóða gestum sínum að sigla í land á léttabátum svo gestir skipanna geti upplifað íslenska náttúru. Friðlýst svæði sem ná út í/að sjó eru vinsælir landtökustaðir þessara báta. Fullyrða má að óheft landtaka skemmtiferðaskipa geti valdið tjóni á viðkvæmri náttúru hér á landi.
    Í skýrslu starfshóps sem ráðherra skipaði á síðasta ári og fjallaði um áskoranir á friðlýstum svæðum kom m.a. fram að slík landtaka væri áskorun á friðlýstum svæðum sem næðu að eða út í haf. Önnur strandsvæði á Íslandi þar sem landtaka er ákjósanleg og náttúran dregur að eru líka vinsæl til landtöku.
    Slík landtaka, sé henni ekki stýrt, getur haft neikvæð áhrif á náttúru svæðisins, á upplifun annarra gesta, auk þess sem um öryggismál er að ræða.
    Í auglýsingum um friðlýsingu nokkurra svæða, eða stjórnunar- og verndaráætlunum þeirra, má finna reglur sem snúa beint að landtöku sbr. neðangreinda upptalningu:
     .      Surtsey, Eldey og Melrakkaey: Landtaka er óheimil.
     .      Skrúður: Landtaka er óheimil nema í samráði við landeiganda.
     .      Flatey: Umferð um hið friðlýsta svæði er óheimil á tímabilinu 15. apríl til 15. ágúst.
     .      Hrísey, Grótta, Dyrhólaey, eyjar og sker við Grunnafjörð: Umferð er óheimil á afmörkuðum svæðum á tímabilinu 15. apríl til 15. júlí, vegna fuglaverndar.
     .      Látrabjarg: Öll umferð og landtaka skipa og báta innan friðlandsins er óheimil. Undanskilið banninu er eftirfarandi:
       a.      Umferð og landtaka vegna nytja hefðbundinna hlunninda.
       b.      Umferð landeigenda sem er ekki í atvinnuskyni.
       c.      Umferð skipa og báta vegna hefðbundinna veiða í sjó með handfæri.
       d.      Umferð kajaka. Kajakræðarar skulu tilkynna Umhverfisstofnun um ferðir sínar undir Látrabjarg áður en þeir leggja af stað.
       e.      Umferð og landtaka vegna rannsókna.
       f.      Umferð skipa og báta sem leita vars undir Látrabjargi vegna veðurs og sjólags.
       g.      Umferð skipa og báta er heimil eftir hefðbundnum siglingaleiðum vestur frá Bjargtöngum og um Látraröst vegna öryggis sjófarenda.
     .      Drangar: Farþegaskipum, sem koma beint af hafi, er óheimilt að hleypa farþegum í land. Landtaka skipa með 51 eða fleiri farþega (farþega og áhöfn) og farartækja í tengslum við þau er óheimil, nema með leyfi Umhverfisstofnunar.
     .      Friðlandið á Hornströndum: Öll umferð skipa nær sjófuglabyggðum en 115 m er bönnuð. Tilmæli Umhverfisstofnunar eru að fara ekki nær fuglabjörgum en 1 km. Landtaka skipa með 51 eða fleiri farþega (farþega og áhöfn) innan friðlandsins og farartækja í tengslum við þau er óheimil nema að höfðu samráði við Umhverfisstofnun.
    Á Íslandi er staðan sú að ekki er til staðar almennt regluverk um landtöku skipa. Í nýlegri skýrslu um landtöku skemmtiferðaskipa við Grænland og Ísland, sem Umhverfisstofnun vann í samvinnu við fulltrúa frá Grænlandi og Glacier Bay þjóðgarðinum í Alaska, kemur fram að stærstu áskoranirnar varðandi landtöku skemmtiferðaskipa við Ísland og Grænland séu að lagaramminn sé veikur í löndunum og að yfirsýn sé ekki til staðar.
    Með ofangreint í huga hefur ráðherra ákveðið að unnið verði frumvarp þar sem sett verður inn almenn heimild til stýringar eða takmörkunar á landtöku skemmtiferðaskipa í náttúruverndarlög. Vinna við frumvarpið mun hefjast á næstunni og haft verður samráð við hagaðila í þeirri vinnu.