Ferill 973. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1704  —  973. mál.




Svar


matvælaráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Isaksen um samanburð á framleiðslu á innlendu og innfluttu kjöti.


     1.      Eru sambærilegar kröfur og reglur um aðbúnað, heilbrigði og velferð dýra við framleiðslu á innlendu og innfluttu kjöti? Ef ekki, hvaða umframkröfum og reglum þurfa innlendir framleiðendur að lúta?
    Lög um velferð dýra, nr. 55/2013, voru samþykkt á Alþingi árið 2013 og tóku gildi í janúar 2014. Lögin taka mið af löggjöf nágrannaþjóða auk þess sem samræmis var gætt, eftir því sem við á, við reglur Evrópusambandsins á þessu sviði. Við gerð laganna var einkum stuðst við löggjöf í Noregi á þessu sviði. Málefni dýravelferðar falla ekki undir EES-samninginn.
    Regluverk Evrópusambandsins varðandi velferð búfjár byggist á tilskipun 98/58/EB. Tilskipunin tekur aðeins til búfénaðar og í henni er að finna almennan ramma um velferð slíkra dýra. Í tilskipuninni segir að aðildarríki sambandsins skuli setja í lagaumhverfi sitt ákvæði um að umráðamenn beiti öllum skynsamlegum leiðum til að tryggja velferð búfjár í þeirra umsjá og að dýr séu laus við óþarfa sársauka, þjáningu og meiðsli. Þá ber aðildarríkjum að tryggja að dýr (önnur en lagardýr) séu alin eða haldin við aðstæður sem hæfa hverri tegund, miðað við viðurkennda þekkingu. Í viðauka eru almenn ákvæði um helstu skilyrði sem slíkum landslögum ber að innihalda. Umrætt regluverk felur í sér lágmarksreglur og er ríkjum heimilt að ganga lengra en þær reglur kveða á um.
    Settar hafa verið reglugerðir og tilskipanir um velferð ákveðinna búfjártegunda, sem og varðandi velferð dýra við flutning og aflífun:
     *      Tilskipun 2007/43/EB um lágmarksreglur fyrir velferð kjúklinga sem eru haldnir fyrir kjötframleiðslu.
     *      Tilskipun 1999/74/EB um lágmarksreglur fyrir velferð við eldi egghænsna.
     *      Tilskipun 2008/119/EB um lágmarksreglur fyrir velferð við kálfaeldi.
     *      Tilskipun 2008/120/EB um lágmarksreglur fyrir velferð við svínaeldi.
     *      Reglugerð (EB) nr. 1/2005 um velferð dýra við flutning.
     *      Reglugerð (EB) nr. 1099/2009 um vernd dýra við aflífun.
    Þrátt fyrir að einungis reglugerð (EB) nr. 1099/2009 hafi verið tekin upp í EES-samninginn, sem var innleidd hér á landi með reglugerð nr. 911/2012, byggist íslenskt regluverk um velferð einstakra búfjártegunda á sambærilegum sjónarmiðum og það regluverk sem gildir innan Evrópusambandsins. Þau almennu ákvæði sem er að finna í tilskipun 98/58/EB má finna í lögum um velferð dýra og reglugerðum sem settar hafa verið á grundvelli laganna. Þá gilda sambærilegar reglur hér á landi og gilda innan sambandsins varðandi allar framangreindar dýrategundir.
    Að öðru leyti hefur ekki verið gerð sérstök greining á því hvort og þá hvaða umframkröfur eru gerðar hérlendis til framleiðenda hvað varðar velferð dýra í samanburði við kröfur sem gerðar eru til framleiðenda í þeim ríkjum þar sem kjöt sem flutt er til Íslands er framleitt. Framleiðendur hérlendis þurfa einnig að lúta öðrum lögum og reglugerðum sem heyra undir önnur ráðuneyti og verður ekki nánar fjallað um hér, svo sem kröfum samkvæmt byggingarreglugerð og kröfum sem varða skipulagsmál, svo sem lög um hollustuhætti og mengunarvarnir.

     2.      Ef gerðar eru strangari kröfur til framleiðslu á innlendu kjöti, hefur þá verið greint hver umframkostnaður vegna þeirra krafna er við innlenda kjötframleiðslu í samanburði við framleiðslu á innfluttu kjöti? Svar óskast sundurliðað eftir framleiðslutegund.
    Vísað er til svars við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.

     3.      Eru mismunandi kröfur gerðar varðandi sýklalyfjanotkun við framleiðslu á innlendu og innfluttu kjöti? Ef svo er, þá hverjar?
    Regluverk Evrópusambandsins um dýralyf hefur verið innleitt í EES-samninginn og gildir hér á landi. Sömu kröfur gilda því hérlendis og í öðrum EES-ríkjum. Nýjasta reglugerð Evrópusambandsins (reglugerð (ESB) 2019/6) hefur nú þegar verið innleidd hérlendis með lögum um dýralyf, nr. 14/2022, ásamt afleiddum gerðum.
    Ekki hefur verið gerð sérstök greining á því hvort og þá hvaða kröfur eru gerðar í löndum utan EES. Rétt er þó að geta þess að ríkar kröfur eru gerðar til matvæla sem heimilt er að flytja inn á Evrópska efnahagssvæðið, ekki síst afurða úr dýraríkinu. Óheimilt er að flytja til Íslands afurðir sem ekki uppfylla þessar kröfur. Auk þess að þurfa að uppfylla EES-kröfur um matvæli, þ.m.t. varðandi dýralyfjaleifar, má einungis flytja inn dýraafurðir frá samþykktum starfsstöðvum sem hafa verið teknar út og samþykktar af Evrópusambandinu.

     4.      Hversu mikið magn er notað af sýklalyfjum við framleiðslu á innlendu kjöti annars vegar og innfluttu kjöti hins vegar?
    Lyfjastofnun Evrópu (EMA) heldur utan um upplýsingar um notkun sýklalyfja í dýrum í löndum Evrópu. Í nýrri samantekt frá stofnuninni eru birtar upplýsingar um heildarnotkun sýklalyfja í dýrum í 31 landi innan Evrópu árið 2021, mælt í tonnum (Sales of veterinary antimicrobial agents in 31 European countries in 2021). 1 Í töflu 3 í skýrslunni (bls. 23) má sjá hvar Íslands stendur í notkun sýklalyfja í samanburði við önnur ríki innan Evrópu. Hafa þarf í huga við samanburð milli landa að það getur haft áhrif á niðurstöður um heildarnotkun sýklalyfja að búfjárhald er ólíkt milli landa og notkun sýklalyfja mismunandi milli búgreina.
    Skýrsla starfshóps um aðgerðaáætlanir o.fl. vegna sýklalyfjaónæmra baktería í dýrum, sláturafurðum og matvælum frá því í febrúar 2021 gefur gott yfirlit yfir stöðuna hér á landi, en þar kemur m.a. fram að notkun sýklalyfja í dýrum á Íslandi er áfram ein sú minnsta í allri Evrópu.
    Hvað varðar notkun sýklalyfja við framleiðslu á kjöti frá löndum utan Evrópu má benda á samantektir um notkun sýklalyfja í heiminum á vegum Alþjóðadýraheilbrigðisstofnunarinnar (WOAH, áður OIE) sem Ísland er aðili að. Nýjasta útgáfa skýrslunnar er frá því í júní 2022. 2

     5.      Hefur ráðherra áform um að merkja sérstaklega kjöt sem er meðhöndlað með sýklalyfjum í fyrirbyggjandi skyni eða upplýsa neytendur um slíka sýklalyfjanotkun með einhverjum hætti? Ef ekki, hver eru rökin fyrir því?
    Árið 2020 kom út skýrsla starfshóps um betri merkingar matvæla. Í þeirri skýrslu má finna 12 tillögur starfshópsins varðandi merkingar matvæla. Starfshópurinn lagði til að upplýsingar um lyfjanotkun væru gerðar aðgengilegar neytendum en ekki var greint frá tillögum til úrbóta. Úrvinnsla þessara tillagna er í skoðun og/eða vinnslu innan matvælaráðuneytisins en ekki hefur verið tekin ákvörðun varðandi áframhald vinnu við tillögu 10 sem tengist lyfjanotkun. Ljóst er að verkefnið er umfangsmikið og ólíkar hindranir hvað varðar þær kröfur sem hægt er að gera til innfluttra eða innlendra matvæla. Engar kröfur varðandi merkingar af þessu tagi eru gerðar hjá Evrópusambandinu en allar kröfur um merkingar á matvælum fluttum inn frá Evrópska efnahagssvæðinu verða að vera í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum.
    Í lok árs 2022 var skipaður starfshópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins, en einnig koma að þeirri vinnu matvælaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Þeim starfshóp er ætlað að móta framtíðarsýn um áætlun til tíu ára við að sporna gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmra baktería. Matvælaráðuneytið mun byggja ákvarðanir og stefnumótun varðandi sýklalyfjaónæmis, og þar á meðal aðgerð 10 um betri merkingar matvæla, á niðurstöðum og aðgerðaáætlun starfshópsins.

     6.      Er ráðherra tilbúinn til þess að beita 2. málsl. 25. gr. laga um velferð dýra, nr. 55/2013, og takmarka eða banna innflutning eða dreifingu dýraafurða sem eru framleiddar í andstöðu við lög um velferð dýra? Ef ekki, hver eru rökin fyrir því?
    Skuldbindingar Íslands samkvæmt EES-samningnum kveða á um í meginatriðum að allar magntakmarkanir á innflutningi og útflutningi svo og allar ráðstafanir sem hafa samsvarandi áhrif séu óheimilar. Samkvæmt 13. gr. EES-samningsins komi það þó ekki í veg fyrir að leggja megi á innflutning eða útflutning bönn eða höft sem réttlætist m.a. af almennu siðferði og vernd eða heilsu manna eða gróðurvernd en þó að því tilskildu að slík höft leiði ekki til gerræðislegrar mismununar eða séu duldar hömlur á viðskipti milli samningsaðila.
    Í 2. málsl. framangreindrar 25. gr. laga um velferð dýra er kveðið á um að ráðherra geti sett ákvæði í reglugerð sem takmarka eða banna innflutning eða dreifingu dýraafurða sem eru framleiddar í andstöðu við lögin með þeim takmörkunum sem leiðir af alþjóðasamningum. Í greinargerð sem fylgir frumvarpi sem varð að lögum nr. 55/2013 er ítrekað að þessi reglugerðarheimild sæti þeim takmörkunum sem leiðir af alþjóðasamningum, svo sem fríverslunarsamningum sem Ísland er aðili að. Með hliðsjón af þeim takmörkunum sem hljótast af skuldbindingum Íslands er ljóst að grundvöllur slíkrar ákvörðunar yrði að vera skýr, einkum að nákvæmur samanburður á mismunandi kröfum til dýravelferðar liggi fyrir. Þessi grundvöllur liggur ekki fyrir, sbr. svar við 1. tölul. fyrirspurnarinnar.

     7.      Hefur verið fylgst með og skráð hvort innlend framleiðsla á kjöti hafi dregist saman samhliða auknum innflutningi á kjöti síðustu 10 ár? Ef svo er, þá er óskað eftir sundurliðuðu svari eftir árum og framleiðslutegund. Ef ekki, er fyrirhugað að halda utan um slíkar upplýsingar með einhverjum hætti?
    Reglulega er fylgst með þróun á innlendri framleiðslu og innflutningi kjötafurða. Á mælaborði landbúnaðarins eru birtar upplýsingar um þróun innlendrar kjötframleiðslu eftir tegundum og árum. Einnig eru þar birtar upplýsingar um innflutning á kjöti eftir tegundum og árum. Hagstofa Íslands birtir einnig gögn um þróun á innlendri kjötframleiðslu og innflutningi kjötafurða.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá hvernig innlend framleiðsla og innflutningur hefur þróast síðastliðin tíu ár eftir kjöttegundum, í tonnum. Upplýsingar um innlenda framleiðslu eru skráðar í heilum skrokkum, þ.e. kjöt með beini. Innflutningur er skráður í samræmi við vörulýsingu, ýmist kjöt með beini eða beinlaust. Til að auðvelda samanburð á innlendri framleiðslu og innflutningi má sjá í töflunni annars vegar raunverulegt magn innflutnings og hins vegar magn innflutnings sem hefur verið umreiknað í skrokka.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Heimild: Mælaborð landbúnaðarins og Hagstofa Íslands.
1     www.ema.europa.eu/en/documents/report/sales-veterinary-antimicrobial-agents-31-european-countries -2021-trends-2010-2021-twelfth-esvac_en.pdf
2     www.woah.org/app/uploads/2022/06/a-sixth-annual-report-amu-final-1.pdf