Ferill 417. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1705  —  417. mál.



Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um endurviðtökusamninga.


     1.      Við hvaða ríki hefur Ísland gert virka endurviðtökusamninga og hver er gildistími þeirra samninga?
    Í töflunni hér að neðan koma fram upplýsingar um virka endurviðtökusamninga sem Ísland hefur gert. Samningarnir voru gerðir til ótímabundins tíma en eru uppsegjanlegir. Í töflunni kemur fram hvenær samningarnir voru gerðir og upplýsingar um gildistöku.

Ríki Dagsetning undirritunar Gildistaka
Albanía 26. ágúst 2008 1. janúar 2010
Georgía 22. september 2017 Áætluð 1. júlí 2023
Marokkó 20. febrúar 2009 1. júní 2013
Rússland 23. september 2008 1. mars 2010
Úkraína 25. september 2013 1. desember 2015

    Árið 1997 voru jafnframt gerðir endurviðtökusamningar við Eistland, Lettland og Litháen sem nú eru hluti af Schengen-samstarfinu í gegnum aðild sína að Evrópusambandinu. Beðið er svarnótu Georgíu vegna staðfestingar samnings milli ríkjanna og tekur hann gildi tveimur mánuðum eftir móttöku hennar.

     2.      Við hvaða ríki hyggjast íslensk stjórnvöld gera slíka samninga til viðbótar og hver er staðan á þeirri vinnu gagnvart hverju ríki fyrir sig?
    Að höfðu samráði milli utanríkisráðuneytis og dómsmálaráðuneytis er áformað að gera næst endurviðtökusamninga við eftirtalin ríkin (í stafrófsröð): Alsír, Írak, Kólumbíu, Marokkó, Nígeríu, Norður-Makedóníu, Túnis og Venesúela. Unnið er að gerð samnings við Norður-Makedóníu. Fljótlega verður óskað eftir gerð samninga við hin ríkin sem upp eru talin hér að framan.

    Alls fóru tvær vinnustundir í að taka svarið saman.