Ferill 337. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1708 — 337. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Kristrúnu Frostadóttur um landsbyggðarlán Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.
1. Telur ráðherra að markmiðum landsbyggðarlána Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, um að koma til móts við það misvægi sem ríkir á milli byggingarkostnaðar og markaðsverðs á hluta landsins, sé náð?
Landsbyggðarlán eru veitt á grundvelli VI. kafla um lán til byggingar íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni utan vaxtarsvæða, í reglugerð um lánaflokka Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, nr. 1350/2021, en var upphaflega komið á í september 2019 með reglugerð nr. 801/2019. Heimilt er að veita slík lán til sveitarfélaga, einstaklinga og annarra framkvæmdaraðila til byggingar íbúðarhúsnæðis á landsbyggðinni utan vaxtarsvæða í því skyni að tryggja aðgang að lánsfé til byggingar hagkvæmra íbúða á svæðum þar sem erfitt reynist að fá fjármögnun til byggingar á íbúðarhúsnæði eða vaxtakjör eru mun hærri en á virkari markaðssvæðum. Landsbyggðarlán Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafa það að markmiði að tryggja eðlilegt framboð hagkvæmra íbúða á þessum svæðum, auka húsnæðisöryggi óháð búsetu og stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði og viðskiptum með íbúðarhúsnæði.
Heimilt er að veita umsækjendum landsbyggðarlán til að byggja íbúðir til eigin nota, sem búseturéttaríbúðir eða til sölu. Séu íbúðirnar ætlaðar til sölu skal þó liggja fyrir samningur lántaka við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á grundvelli 22. gr. reglugerðar um hlutdeildarlán, nr. 1084/2020, sem fjallar um samning byggingaraðila sem hyggjast byggja íbúðir sem heimilt verði að fjármagna með hlutdeildarláni, um samstarf við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Á meðal skilyrða um veitingu landsbyggðarlána er að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun telji að möguleikar umsækjanda á að fá lán hjá öðrum lánastofnunum séu verulega takmarkaðir eða honum bjóðist einungis lán á verulega hærri kjörum en almennt bjóðast á virkari markaðssvæðum, vegna staðsetningar húsnæðis eða markaðsaðstæðna á svæðinu.
Þegar þetta er ritað hefur aðeins verið veitt eitt landsbyggðarlán til einstaklings til byggingar húsnæðis til eigin nota. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur samþykkt 12 landsbyggðarlán vegna 67 íbúða til framkvæmdaraðila sem eru að byggja fasteignir til sölu, m.a. með hlutdeildarlánum.
2. Telur ráðherra að markmiðum landsbyggðarlána Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, um að tryggja aðgengi að fjármagni á sambærilegum kjörum og eru í boði á virkari markaðssvæðum, sé náð?
Það er mat ráðherra að þau verkefni sem hafa fengið landsbyggðarlán hefðu átt erfitt með að tryggja sér nauðsynlega fjármögnun ef ekki væri fyrir þennan lánaflokk.
3. Hvers vegna eru vaxtakjör landsbyggðarlána Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar langtum verri en þau vaxtakjör sem bjóðast hjá almennu viðskiptabönkunum?
Í þessu samhengi er rétt að rekja hvernig fjármögnun lánanna er samsett. Á fyrsta og öðrum veðrétti eru veitt hefðbundin íbúðalán sem bera sömu vexti og lán HMS til einstaklinga á öðrum landsvæðum. Þar á eftir kemur landsbyggðarlán vegna þess hluta sem er umfram 80% af verðmati fasteignar. Slík lán eru ekki í boði á almennum lánamarkaði og því er erfitt að bera þau saman við vaxtakjör annarra lánveitenda, nema að bera saman við kjörvaxtalán bankanna sem eru að jafnaði 1–2 prósentustigum hærri en vextir íbúðalána. Ef þeir væru hins vegar bornir saman við þá vexti sem Arion banki býður á 3. veðrétti á eftir öðrum lánveitenda, þó ekki hærra en 80% veðsetning, eru þeir vextir núna 5,09% miðað við verðtryggð lán en 11,35% miðað við óverðtryggð. Er það hærra en það sem HMS býður í landsbyggðarlánum þar sem veðsetning er mun meiri. Hér að neðan er tafla þar sem lánakjör HMS eru borin saman við lánakjör Arion banka en athygli er vakin á því að veðsetning er ekki sambærileg í þeim dæmum þar sem Arion banki lánar ekki umfram 80–85% veðsetningu. Í eftirfarandi dæmi er horft til Arion banka í dæmaskyni, þar sem hann er sá eini sem býður upp á svokölluð íbúðalán III, en samanburðurinn er svipaður með tilliti til kjara hinna viðskiptabankanna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Hér má sjá að vegnir vextir HMS eru hagstæðari en vextir Arion banka. Þá má einnig vekja athygli á því að vaxtakjör íbúðalána hjá tveimur af þremur bönkunum miðast við veðsetningu miðað við fasteignamat en HMS miðar við kaupverð eða byggingarkostnað.
4. Telur ráðherra það þjóna markmiðum landsbyggðarlánanna að hafa vaxtakjör þeirra mun lakari en almennra lána til húsnæðiskaupa hjá almennu viðskiptabönkunum?
Eins og rakið var í svari við 3. spurningu hér að framan eru vaxtakjör landsbyggðarlána ekki lakari en þau sem bjóðast hjá öðrum lánveitendum.