Ferill 822. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1709 — 822. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (fjölgun dómara við Landsrétt).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur og Hákon Þorsteinsson frá dómsmálaráðuneyti. Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Dómarafélagi Íslands og dómstólasýslunni. Með frumvarpinu er lagt til að dómurum við Landsrétt verði fjölgað varanlega um einn, úr 15 í 16 dómara.
Umfjöllun meiri hlutans.
Landsréttur tók til starfa 1. janúar 2018 á grundvelli laga um dómstóla, nr. 50/2016, og var þá mælt fyrir um að dómarar yrðu 15. Líkt og kemur fram í greinargerð með fyrirliggjandi frumvarpi hafa þær forsendur sem horft var til varðandi fjölda dómara breyst. Þar segir m.a. að nokkur röskun hafi orðið á starfsemi Landsréttar frá stofnun hans og dómstóllinn stóran hluta þess tíma verið undirmannaður. Dómstólasýslan vakti athygli dómsmálaráðuneytis á því hinn 7. desember 2022 að brýn þörf væri á að fjölga dómurum við Landsrétt svo unnt væri að halda ásættanlegum málshraða við dómstólinn og eru forsendur þess nánar raktar í greinargerð með frumvarpinu. Meiri hlutinn tekur undir nauðsyn þess að fjölga dómurum um einn þar sem mikilvægt sé að tryggja að starfsemi Landsréttar sæti ekki frekari röskun og unnt sé að skipuleggja störf réttarins svo að málsmeðferðartími lengist ekki enn frekar. Meiri hlutinn undirstrikar að það er grundvallarréttur aðila að fá réttláta málsmeðferð fyrir dómstólum, þar á meðal að málsmeðferð fari fram innan hæfilegs tíma, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1994, og 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Í umsögn Dómarafélags Íslands um málið er jafnframt vakin athygli á álitaefni er varðar setningu í embætti dómara vegna leyfis skipaðs dómara og hvort tímabundin setning kunni að hafa áhrif á sjálfstæði og störf dómara. Það leiði af orðalagi 61. gr. stjórnarskrárinnar að dómarar skuli skipaðir ótímabundið. Heimilt er samkvæmt ákvæðum laga nr. 50/2016 að setja dómara tímabundið til allt að tólf mánaða, sem getur verið nauðsynlegt til að stuðla að skilvirkni dómskerfisins. Dómarafélagið telur það vekja upp spurningar um hvort ákvæði laganna um heimild til að setja dómara á öllum dómstigum til sex ára vegna leyfis skipaðs dómara til að starfa hjá alþjóðadómstól eða alþjóðastofnun samrýmist sjónarmiðum um sjálfstæði dómstóla. Meiri hlutinn tekur undir þessar ábendingar Dómarafélags Íslands og er sammála því að mikilvægt sé að skoða hvernig bregðast megi við þessari stöðu með mögulegum breytingum á lögum um dómstóla. Meiri hlutinn beinir því til dómsmálaráðherra að skoða mögulegar leiðir til þess og, ef tilefni er til, að leggja fram frumvarp til breytinga á dómstólalögum sem fyrst.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Alþingi, 5. maí 2023.
Bryndís Haraldsdóttir, form., frsm. |
Birgir Þórarinsson. | Jódís Skúladóttir. | |
Jóhann Friðrik Friðriksson. | Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. |