Ferill 1021. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1875  —  1021. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Gísla Rafni Ólafssyni um stöðu þeirra sem eru óstaðsettir í hús í þjóðskrá.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hvernig miðar vinnu ráðuneytisins, Þjóðskrár Íslands, Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga við tillögur að úrbótum vegna stöðu þeirra sem eiga lögheimili í sveitarfélagi en eru skráðir „óstaðsettir í hús“?

    Nú seinni part vetrar var ákveðið að setja á fót starfshóp til að skoða búsetu þeirra sem eru skráðir með ótilgreint heimilisfang skv. 4. gr. laga um lögheimili og aðsetur, nr. 80/2018. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að verði ekki skorið úr um lögheimili einstaklings skv. 1. mgr. sé heimilt að skrá einstakling til lögheimilis í sveitarfélagi án tilgreinds heimilisfangs. Skal þá miðað við það sveitarfélag þar sem hann hefur haft þriggja mánaða samfellda dvöl. Að mati nokkurra sveitarfélaga hefur borið á því að slíkum skráningum hafi fjölgað verulega í sumarhúsabyggðum innan marka sveitarfélaganna og telja þau að slíkar skráningar kunni að vera í andstöðu við reglur sem banna fasta búsetu í frístundabyggð.
    Ráðuneytið taldi rétt að taka þessi mál til sérstakrar skoðunar með hliðsjón af því hvort rétt væri að breyta þessum reglum og því var umræddur starfshópur settur á fót og hefur hann hafið störf.
    Verkefni starfshópsins er m.a. að:
     –      greina hversu margir eru skráðir með ótilgreint heimilisfang á landsvísu, skipt niður eftir sveitarfélögum,
     –      greina hvernig búsetu þessara einstaklinga er háttað, sé það hægt, eftir sveitarfélögum,
     –      greina ástæður fyrir fjölgun skráninga, sé það hægt,
     –      meta hvort rétt sé að skrá einstaklinga sem búa ólöglega í frístundabyggð í sveitarfélagi með ótilgreint heimilisfang í sveitarfélaginu, t.d. út frá öryggissjónarmiðum, eða hvort slík skráning sé misnotkun á 2. mgr. 4. gr. laga um lögheimili og aðsetur,
     –      eftir atvikum að leggja til breytingar á ákvæðinu eða leggja til aðrar breytingar á lögum eða aðrar úrbætur.
    Í hópnum eru fulltrúi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sem jafnframt er formaður. Einnig eru í honum fulltrúar Þjóðskrár Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, ásamt fulltrúa frá almannavörnum. Gert er ráð fyrir að hópurinn ljúki störfum fyrir 1. október nk.