Ferill 770. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1918  —  770. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um stafrænar umbætur í heilbrigðiskerfinu.


     1.      Er unnið að stafrænum umbótum í heilbrigðiskerfinu í samstarfi við verkefnastofuna Stafrænt Ísland? Ef svo er, hvaða umbótum?
    Embætti landlæknis á í samstarfi við Stafrænt Ísland um að skoða leiðir til að nýta betur þær lausnir sem settar hafa verið upp af Stafrænu Íslandi fyrir heilbrigðiskerfið á Íslandi. Verið er að skoða leiðir til að samþætta frekar Mínar síður á heilsuvera.is og Mínar síður á island.is þannig lausnirnar virki sem ein heild fyrir notendur.
    Einnig er verið að skoða hvernig hægt sé að nýta Strauminn (X-Road), sem er öruggt gagnaflutningslag fyrir upplýsingakerfi sem Stafrænt Ísland hefur innleitt. Embætti landlæknis notast við Heklu – heilbrigðisnet til gagnasendinga milli kerfa. Verið er að skoða hvort Straumurinn myndi styðja við rauntímagagnasendingar í Heklu eða jafnvel taka alfarið yfir virkni Heklu í framtíðinni.

     2.      Er unnið að því að gera sjúkraskrár aðgengilegar öllum þjónustuveitendum í heilbrigðiskerfinu í einum miðlægum gagnagrunni?
    Áfram er unnið að samtengingu/samþættingu mismunandi sjúkraskrárkerfa en ekki er unnið að því að setja allar sjúkraskrár landsmanna í einn miðlægan grunn. Stór hluti rafrænna sjúkraskráa á Íslandi er í dag samtengdur, þannig að þjónustuveitendur geta nálgast upplýsingar um sína skjólstæðinga óháð því hvar þær eru vistaðar. Einnig er vaxandi hluti sjúkraskrárupplýsinga vistaður í miðlægum lausnum, annaðhvort í einum og sama grunninum eða með samþættingarlagi milli gagnagrunna þannig að aðgangur sé greiður. Dæmi um þetta eru lyfjagagnagrunnur, bólusetningargrunnur, lyfjaávísanagátt, miðlægt lyfjakort, en þetta fyrirkomulag tryggir aðgang þjónustuveitenda en auðveldar einnig aðgang almennings að eigin upplýsingum.
    Þá er rétt að geta þess að ráðherra skipaði stýrihóp um þróun og stefnumótun stafrænna lausna í heilbrigðiskerfinu. Hópnum er stýrt af ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu en sæti í hópnum eiga fulltrúar embættis landlæknis, Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis, Sjúkrahússins á Akureyri, Samtaka sjúkrastofnana, Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og Samtaka iðnaðarins. Helsta hlutverk hópsins er að fylgja eftir og innleiða stafræna stefnu ráðuneytisins og vinna að aðgerðaáætlun til útfærslu á henni. Stefna ráðuneytisins um rafræna heilbrigðisþjónustu, sem gefin var út árið 2022, samanstendur af þremur meginstoðum:
     –      virkja einstaklinginn sem þátttakanda í eigin meðferð og heilsueflingu,
     –      auka samhæfingu milli kerfa,
     –      styðja við nýsköpun og eflingu vísinda og rannsókna.
    Meðal fyrstu verkefna stýrihópsins er að vinna að því að gagnagrunnar heilbrigðiskerfisins séu annaðhvort sameinaðir eða „tali saman“ þannig að notendur, hvort heldur sem er heilbrigðisstarfsfólk eða almenningur, hafi þær upplýsingar sem þörf er á hverju sinni og á réttum tíma. Stýrihópurinn hefur einnig hafið vinnu við endurskoðun á notkun staðla sem notaðir eru við hugbúnaðargerð og í heilbrigðisgagnagrunnum á vegum hins opinbera. Er markmið verkefnisins meðal annars að auka aðgengi milli kerfa og gagnagrunna. Þetta er aðgerð sem stuðlar að samþættingu gagna en mun jafnframt styðja við og efla nýsköpun, rannsóknir og vísindi. Undirhópur um staðla hefur þegar hafið störf og er skipaður fulltrúum ráðuneytisins, embættis landlæknis, Landspítala, Staðlaráðs og nýsköpunarfyrirtækja á þessu sviði. Í vinnu hópsins er stefnt að þeim markmiðum að auðvelda deilingu á heilbrigðisupplýsingum, stuðla að nýsköpun og auðvelda þátttöku í alþjóðlegu samstarfi á þessu sviði. Hópurinn er að kynna sér fyrirkomulag ýmissa Evrópuþjóða, nýjar og tiltækar lausnir, og stefnir að því að leggja tillögur að nýju fyrirkomulagi fyrir stýrihópinn á haustmánuðum.