Ferill 1068. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1920 — 1068. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur um hjón á hjúkrunarheimilum.
Upplýsinga var aflað hjá embætti landlæknis sem fer með færni- og heilsumatsskrá, Sjúkratryggingum Íslands, Landspítala og heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni.
1. Hversu mörg hjón dvelja á hjúkrunarheimili en búa ekki saman? Hversu mörg hjón búa saman á hjúkrunarheimili?
Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir í færni- og heilsumatsskrá. Mögulega mætti samkeyra upplýsingar úr skránni við upplýsingar úr þjóðskrá en slík samkeyrsla krefst heimildar Persónuverndar.
2. Hversu mörg hjón bjuggu ekki saman árin 2018–2022 þrátt fyrir að dveljast bæði á hjúkrunarheimili á grundvelli færni- og heilsumats?
Væntanlega er þetta sama spurning og í 1. lið fyrirspurnarinnar, en yfir lengra tímabil. Upplýsingar liggja ekki fyrir í færni- og heilsumatsskrá. Mögulega mætti samkeyra upplýsingar úr skránni við upplýsingar úr þjóðskrá en slík samkeyrsla krefst heimildar Persónuverndar.
3. Hversu margir létust á sama árabili meðan annað hjóna dvaldist á hjúkrunarheimili en maki var á biðlista eftir hjúkrunarrými?
Þessar upplýsingar liggja ekki fyrir í færni- og heilsumatsskrá. Mögulega mætti samkeyra upplýsingar úr skránni við upplýsingar úr þjóðskrá en slík samkeyrsla krefst heimildar Persónuverndar.
4. Hversu margir eru á biðlista eftir hjúkrunarrými?
Samkvæmt færni- og heilsumatsskrá voru 478 einstaklingar á biðlista eftir hjúkrunarrými þann 1. maí síðastliðinn. Er þá miðað við að einstaklingar hafi gilt færni- og heilsumat og að þeir hafi skráð ósk um vistunarstað. Þau sem ekki höfðu skráð ósk um vistunarstað eða voru að bíða eftir flutningi á annað hjúkrunarheimili eru ekki talin með.
5. Hversu margir dveljast í svonefndu biðplássi á hjúkrunarheimili og bíða þar eftir varanlegu plássi?
Biðrými fyrir einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítala og bíða varanlegs rýmis á hjúkrunarheimili eru 43. Þau rými eru á höfuðborgarsvæðinu og á Vesturlandi. Eitt biðrými er nú fyrir Sjúkrahúsið á Akureyri en leitað er leiða til að fjölga þeim. Hið sama má segja um höfuðborgarsvæðið, enda er mikilvægt fyrir hinn aldraða að vera ekki innlagður á sjúkrahús lengur en nauðsyn krefur.
6. Hversu margir dveljast á öðrum heilbrigðisstofnunum en eru á biðlista eftir hjúkrunarrými?
Samkvæmt upplýsingum frá Landspítala voru 66 einstaklingar inniliggjandi á spítalanum með gilt færni- og heilsumat þann 15. maí síðastliðinn. Af þeim voru 15 á skilgreindri biðdeild en 51 á öðrum deildum spítalans. Á heilbrigðisstofnunum utan höfuðborgarsvæðis voru samtals 26 einstaklingar með gilt færni- og heilsumat sem biðu eftir hjúkrunarrými þann 26. maí (punktstaða).
7. Hvernig er hjónum gert kleift að búa saman á hjúkrunarheimili þegar annað þeirra eða bæði hafa fengið heilsu- og færnimat um dvöl á slíku heimili?
Í reglugerð um færni- og heilsumat vegna dvalar- og hjúkrunarrýma, nr. 466/2012, með síðari breytingum, kemur fram í 10. gr. að færni- og heilsumatsnefndir séu ábyrgar fyrir mati á dvalarþörf íbúa í því heilbrigðisumdæmi sem þær starfa. Í 5. gr. segir m.a. að verkefni nefndanna sé að leggja faglegt mat á þörf aldraðs fólks fyrir dvalarrými og hjúkrunarrými. Færni- og heilsumat er því forsenda flutnings í dvalar- og hjúkrunarrými. Rýmum er úthlutað í samræmi við mat nefndanna og óskir viðkomandi einstaklings um hjúkrunarheimili. Engar sérstakar reglur eða undantekningar eru í gildi fyrir hjón aðrar en þær að reynt er að mæta óskum einstaklinga að því marki sem hægt er.