Ferill 1151. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1941  —  1151. mál.




Fyrirspurn


til utanríkisráðherra um námuvinnslu á hafsbotni.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvaða afstöðu hafa íslensk stjórnvöld tekið á vettvangi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar til hugmynda um að banna námuvinnslu á hafsbotni til að vernda vistkerfi og líffræðilega fjölbreytni djúpsjávar?
     2.      Munu fulltrúar Íslands beita sér fyrir slíku banni þegar 28. aðildarríkjafundi Alþjóðahafsbotnsstofnunarinnar verður fram haldið 28. júní til 7. júlí 2023?


Skriflegt svar óskast.