Ferill 1153. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1964  —  1153. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um lög um kynrænt sjálfræði og kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu.

Frá Andrési Inga Jónssyni.


     1.      Hvaða breytingar hafa verið gerðar á reglum um það hvaða læknismeðferð fellur undir sjúkratryggingar almannatrygginga í kjölfar gildistöku laga um kynrænt sjálfræði, nr. 80/2019?
     2.      Hvaða meðferðir sem falla undir reglugerð nr. 722/2009, um lýtalækningar sem sjúkratryggingar almannatrygginga taka til, og eru hluti af kynstaðfestandi meðferð eru afmarkaðar við tiltekið kyn?
     3.      Hvaða áform eru uppi um að endurskoða framangreindar reglur þannig að þær samræmist betur þeim réttindum sem leiðir af lögum um kynrænt sjálfræði? Telur ráðherra ástæðu til að kveða á um að réttur til kynstaðfestandi heilbrigðisþjónustu sé óháður skráningu kyns í þjóðskrá svo að kynvitund einstaklinga njóti viðurkenningar og réttur þeirra til að skilgreina kyn sitt sé virtur?


Skriflegt svar óskast.