Ferill 1161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1999 — 1161. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um forsendur og endurskoðun krabbameinsáætlunar.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
1. Telur ráðherra forsendur krabbameinsáætlunar frá 2016 standast, í ljósi þess að spár benda til að fjölgun krabbameinstilfella verði umtalsverð, m.a. vegna þess að hlutfall aldraðra hefur hækkað?
2. Hyggst ráðherra endurskoða áætlunina?
Skriflegt svar óskast.