Ferill 929. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2025  —  929. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um sjóði á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvaða sjóði starfrækja ráðuneytið og stofnanir þess?
     2.      Hver fer með umsýslu hvers sjóðs?
     3.      Hvaða lög og reglur gilda um útdeilingu fjármuna úr hverjum sjóði?
     4.      Hvað kostaði að starfrækja hvern sjóð árið 2022?
     5.      Hver var kostnaðurinn við að starfrækja hvern sjóð í hlutfalli við þá fjármuni sem var úthlutað úr sjóðnum árið 2022?


    Lagður er sá skilningur í fyrirspurnina að verið sé að spyrja um úthlutunar- eða styrktarsjóði og tekur svarið mið af því. Engir slíkir sjóðir eru starfræktir á vegum ráðuneytisins eða stofnana þess og er því hvorki um að ræða umsýslu né kostnað af þeim toga.