Ferill 730. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2027 — 730. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Dagbjörtu Hákonardóttur um breytingar á sköttum og gjöldum frá ársbyrjun 2018.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hvaða skattar og gjöld hækkuðu frá og með ársbyrjun 2018 til ársloka 2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, með upplýsingum um árlegar tekjur af hverri hækkun um sig og aðgerðir vegna COVID-19 skulu tilgreindar sérstaklega.
2. Hvaða skattar og gjöld lækkuðu frá og með ársbyrjun 2018 til ársloka 2022? Svar óskast sundurliðað eftir árum, með upplýsingum um árlegan kostnað af hverri lækkun um sig og aðgerðir vegna COVID-19 skulu tilgreindar sérstaklega.
Tafla 1 sýnir helstu breytingar á skattalögum sem hafa haft í för með sér aukningu eða minnkun á tekjum ríkissjóðs frá ársbyrjun 2018 til ársloka 2022. Taflan miðast við breytingar á skattalögum sem lögfestar voru frá upphafi 148. löggjafarþings til loka 152. löggjafarþings. Á 153. löggjafarþingi voru ekki afgreiddar neinar skattkerfisbreytingar með tekjuáhrif sem tóku gildi fyrir árslok 2022. Taflan sýnir áætluð bein fyrstu áhrif á tekjur ríkissjóðs, sundurgreind eftir árum og einstökum sköttum. Ekki eru meðtalin óbein afleidd áhrif sem eiga sér stað síðar vegna áhrifa skattkerfisbreytinganna á hegðun, hagstærðir og skattstofna. Þær lagabreytingar sem voru gerðar vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, COVID-19, eru merktar sérstaklega. Breytingunum er raðað í tímaröð.
Hér er farið yfir þau skilyrði sem tafla 1 miðast við.
1. Breytingar sem eru lögfestar á 148.–152. löggjafarþingi.
2. Breytingar sem hafa marktæk, metanleg og veruleg tekjuáhrif á ríkissjóð.
3. Breytingar sem hafa mjög lítil tekjuáhrif (almennt er miðað við minna en 0,005% af VLF) eru ekki meðtaldar nema breytingin sé nýr skattur eða skattastyrkur eða tekjuáhrifin séu meginmarkmiðið.
4. Bein hliðaráhrif innan sama skatts eða yfir á aðra skatta eru meðtalin.
5. Breytingar á krónutölugjöldum eru aðeins meðtaldar að því marki sem þær eru meiri eða minni en sem nemur verðbólgu á næstliðnu ári, þ.e. raunbreytingar.
6. Aðgerðir vegna veirufaraldursins sem felast í frestun gjalddaga eru ekki meðtaldar.
7. Hliðaráhrif á tekjuskatt af sérstökum úttektum séreignarsparnaðar vegna kórónuveirufaraldursins eru ekki meðtalin.
8. Veiðigjöld eru ekki meðtalin þar sem þau eru ekki flokkuð sem skattar í tekjuflokkunarkerfi fjárlaga eða ríkisreiknings.
Eins og fram kemur í niðurstöðulínum töflunnar voru samanlögð áhrif skattahækkana og skattalækkana orðin um 69,4 milljarðar kr. til lækkunar þegar komið var fram á árið 2022. Eru þá eftirstandandi áhrif af tekjuráðstöfunum vegna kórónuveirufaraldursins meðtalin en að þeim frátöldum nemur skattalækkunin 54,1 milljarði kr. árið 2022.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.