Ferill 960. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2035  —  960. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur um börn í afreksíþróttum.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig er hugað að börnum í afreksíþróttum með tilliti til þess að þau séu ekki undir of miklu álagi andlega og líkamlega og endi ekki í kulnun? Hefur ráðuneytið greint þetta sérstaklega?
     2.      Liggur fyrir stefna um mörk afreksíþrótta þegar börn eiga í hlut?
     3.      Eru gerðar einhvers konar úttektir á því hvort íþróttafélög og aðrir aðilar sem bjóða upp á íþróttir á afreksstigi fyrir börn séu að huga að þessum atriðum?
     4.      Er haldið utan um meiðsli hjá börnum í afreksíþróttum hér á landi?


    Almennt séð eru börn ekki þátttakendur í afreksíþróttum þó að þau séu iðkendur keppnisíþróttagreina. Afreksíþróttir eru oftast keppni einstaklinga er náð hafa fullorðinsaldri þó vissulega séu einhverjar undantekningar frá því í einstökum íþróttagreinum. Stefna ráðuneytis íþrótta var gefin út árið 2019 og gildir til 2030. Stefna ríkisins í íþróttamálum byggist á því grundvallarsjónarmiði að almennt íþróttastarf utan skóla skuli skipulagt af frjálsum félagasamtökum. Íþróttahreyfingin setti sér stefnu um íþróttir barna og unglinga árið 2001. Uppfærð stefna var samþykkt á Íþróttaþingi Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) árið 2015. Stefnunni er skipt upp út frá aldri iðkenda að 18 ára aldri. Stefnan fjallar um markmið starfsins, leiðir til að ná þeim, mælikvarða á árangur og hver markmið keppni barna ættu að vera á ólíkum aldursstigum. Leiðarstefið í stefnunni er að íþróttir ættu að vera fyrir alla, þær eigi að vera skemmtilegar og fjölbreyttar. Lagt er upp úr að þjálfun hæfi líkamlegum og andlegum þroska barna og ungmenna. Sérsambönd ÍSÍ og félög þeim tengd skipuleggja starfið út frá þeim ramma er stefnuyfirlýsingin markar auk þess sem sérsamböndin útfæra reglur sinnar greinar nánar. Fræðslukerfi ÍSÍ og sérsambanda sem og menntun íþróttakennara og íþróttafræðinga á háskólastigi tekur mið af þessu. Mennta- og barnamálaráðuneytið heldur ekki úti sérstökum úttektum á starfsemi íþróttafélaga er þetta varðar.
    Hvað varðar meiðsli er verða við íþróttaiðkun er haldið utan um skráningu slysa hjá Embætti landlæknis. Hér er um að ræða skráningu slysa í almannatryggingakerfinu og má þar lesa út tölur um íþróttaslys greint niður á aldur og kyn. Ekki er hægt að greina á milli íþróttaslysa í skipulögðu starfi íþróttafélaga og slysa sem einstaklingar verða fyrir við íþróttaiðkun sem þeir sjálfir skipuleggja í sínum frítíma. Slys eru einnig flokkuð út frá því hvort um slys í skóla eða á heimili, vinnu eða í öðrum frítíma sé að ræða. Ekki er sérstaklega greint á milli alvarleika slysa. Samkvæmt upplýsingum frá embættinu er unnið að endurskoðun slysaskrár og verður ný slysaskrá sett á laggirnar þegar þeirri endurskoðun er lokið.