Ferill 1129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2043 — 1129. mál.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Ágústi Bjarna Garðarssyni um algilda hönnun og nýbyggingu Alþingis.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Mun nýbygging Alþingis uppfylla allar kröfur um algilda hönnun samkvæmt byggingarreglugerð?
Byggingin uppfyllir allar kröfur byggingarreglugerðar. Hönnuðir höfðu algilda hönnun að leiðarljósi og er því lýst í sérstakri greinargerð sem fylgir aðalteikningu hvernig þessum kröfum er mætt. Í hönnunarferlinu var algild hönnun hússins borin undir sérfræðiráðgjafa um aðgengismál hjá byggingarfulltrúanum í Reykjavík í tvígang áður en teikningar voru lagðar inn til samþykktar. Að því loknu fóru teikningar í gegnum hefðbundið skoðunarferli hjá embætti byggingarfulltrúans í Reykjavík, þ.m.t. fyrir algilda hönnun.