Ferill 605. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2044 — 605. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um skatta og gjöld.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða skattar og gjöld hafa hækkað frá því að núverandi stjórnarflokkar tóku við völdum árið 2017? Óskað er eftir svari í töfluformi.
Tafla 1 sýnir helstu breytingar á skattalögum sem hafa haft í för með sér aukningu á skatttekjum ríkissjóðs frá ársbyrjun 2018 til ársloka 2022. Taflan miðast við breytingar á skattalögum sem lögfestar voru frá upphafi 148. löggjafarþings til loka 152. löggjafarþings. Á 153. löggjafarþingi voru ekki afgreiddar neinar skattkerfisbreytingar með tekjuáhrif sem tóku gildi fyrir árslok 2022. Taflan sýnir áætluð bein fyrstu áhrif á tekjur ríkissjóðs, sundurgreind eftir árum og einstökum sköttum. Ekki eru meðtalin óbein afleidd áhrif sem eiga sér stað síðar, vegna áhrifa skattkerfisbreytinganna á hegðun, hagstærðir og skattstofna. Breytingunum er raðað í tímaröð.
Hér er farið yfir þau skilyrði sem tafla 1 miðast við.
1. Breytingar sem eru lögfestar á 148.–152. löggjafarþingi.
2. Breytingar sem hafa marktæk, metanleg og veruleg áhrif til hækkunar á tekjum ríkissjóðs eru meðtaldar.
3. Breytingar sem hafa mjög lítil tekjuáhrif (almennt er miðað við minna en 0,005% af VLF) eru ekki meðtaldar nema breytingin sé nýr skattur eða tekjuáhrifin séu meginmarkmiðið.
4. Bein hliðaráhrif innan sama skatts eða yfir á aðra skatta eru meðtalin.
5. Breytingar á krónutölugjöldum eru aðeins meðtaldar að því marki sem þær eru meiri en sem nemur verðbólgu á næstliðnu ári, þ.e. raunhækkanir.
6. Hliðaráhrif á tekjuskatt af sérstökum úttektum séreignarsparnaðar vegna kórónuveirufaraldursins eru ekki meðtalin.
7. Veiðigjöld eru ekki meðtalin þar sem þau eru ekki flokkuð sem skattar í tekjuflokkunarkerfi fjárlaga eða ríkisreiknings.
Í þessu sambandi er einnig ástæða til að vekja athygli á upplýsingum sem koma fram í svari við fyrirspurn (730. mál) á yfirstandandi þingi þar sem veitt er yfirlit um skattalækkanir á sama tímabili. Eins og þar kemur fram voru samanlögð áhrif skattahækkana og skattalækkana orðin um 69,4 milljarða kr. til lækkunar þegar komið var fram á árið 2022. Eru þá eftirstandandi áhrif af tekjuráðstöfunum vegna kórónuveirufaraldursins meðtalin en að þeim frátöldum nemur skattalækkunin 54,1 milljarði kr. árið 2022.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.