Ferill 1174. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2058  —  1174. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um héraðslækningar.

Frá Kristrúnu Frostadóttur.


    Hvernig miðar áfram verkefni um héraðslækningar sem fjallað er um í stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018–2024 og hefur að markmiði að fjölga heilsugæslulæknum á landsbyggðinni með því að koma á tveggja ára námi sem býr heilsugæslulækna undir starf í dreifbýli?


Skriflegt svar óskast.