Ferill 1178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2065 — 1178. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um kostnað við sjúkraskrárkerfi og gagnagrunna.
Frá Kristrúnu Frostadóttur.
1. Hver var kostnaður árið 2022 við sjúkraskrárkerfi og gagnagrunna í heilbrigðiskerfinu á borð við Sögu, Heilsugátt, Therapy, eMed, Snjókorn Sögu, Smásögu o.fl.? Svar óskast sundurliðað eftir sjúkraskrárkerfum og gagnagrunnum, heilbrigðisstofnunum og gagnaðilum samnings um þjónustuna.
2. Hefur nýlega verið unnið kostnaðarmat á því að gera öll sjúkraskrárkerfi og gagnagrunna í heilbrigðiskerfinu miðlæg?
Skriflegt svar óskast.