Ferill 1180. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2067  —  1180. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um kostnað vegna verktakagreiðslna til lækna.

Frá Kristrúnu Frostadóttur.

     1.      Hvernig hafa útgjöld ríkisins til að manna stöður lækna í verktöku utan höfuðborgarsvæðisins þróast síðustu fimm ár?
     2.      Hvernig kemur slíkur kostnaður út í samanburði við kostnað við að hafa fasta lækna?


Skriflegt svar óskast.