Ferill 934. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2083 — 934. mál.
Svar
menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um sjóði á vegum ráðuneytisins og stofnana þess.
1. Hvaða sjóði starfrækja ráðuneytið og stofnanir þess?
Eftirtaldir sjóðir eru starfræktir af ráðuneytinu og stofnunum þess:
| Nafn sjóðs | Ráðuneyti/stofnun |
| Áslaugarsjóður | Sinfóníuhljómsveit Íslands |
| Barnamenningarsjóður Íslands | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Bókasafnasjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Bókasafnssjóður höfunda | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Bókmenntasjóður & Barnabókasjóðurinn Auður | Miðstöð íslenskra bókmennta |
| Egnersjóðurinn | Þjóðleikhúsið |
| Finnsk-íslenski sjóðurinn | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Flugþróunarsjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Gjöf Jóns Sigurðssonar | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Grænlandssjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Heiðurslaun listamanna | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Hljóðritunarsjóður tónlistar | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Hönnunarsjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Kvikmyndasjóður | Kvikmyndamiðstöð Íslands |
| Launasjóðir listamanna | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar | Þjóðminjasafn Íslands |
| Minningarsjóður Ingibjargar G. Johnson | Þjóðminjasafn Íslands |
| Minningarsjóður Philip Verrall | Þjóðminjasafn Íslands |
| Myndlistasjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM) | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Safnasjóður | Safnaráð |
| Starfsemi atvinnuleikhópa/Sviðslistasjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Starfsemi áhugaleikfélaga | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Starfsmenntunarsjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (STASÍ) | Sinfóníuhljómsveit Íslands |
| Stuðningur við einkarekna fjölmiðla | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Styrkir Snorra Sturlusonar | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur | Listasafn Íslands |
| Styrktarsjóður Richards Serra | Listasafn Íslands |
| Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur | Listasafn Íslands |
| Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Tónlistarsjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Verkefnasjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ) | Sinfóníuhljómsveit Íslands |
| Þjóðhátíðargjöf Norðmanna | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
2. Hver fer með umsýslu hvers sjóðs?
Umsýsluaðila hvers sjóðs má sjá í eftirfarandi töflu:
| Nafn sjóðs | Umsýsluaðili |
| Áslaugarsjóður | Sinfóníuhljómsveit Íslands |
| Barnamenningarsjóður Íslands | RANNÍS |
| Bókasafnasjóður | RANNÍS |
| Bókasafnssjóður höfunda | Rithöfundasamband Íslands |
| Bókmenntasjóður & Barnabókasjóðurinn Auður | Miðstöð íslenskra bókmennta |
| Egnersjóðurinn | Þjóðleikhúsið |
| Finnsk-íslenski sjóðurinn | Hanaholmen kulturcentrum |
| Flugþróunarsjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | Ferðamálastofa |
| Gjöf Jóns Sigurðssonar | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Grænlandssjóður | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Heiðurslaun listamanna | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
| Hljóðritunarsjóður tónlistar | RANNÍS |
| Hönnunarsjóður | Miðstöð hönnunar og arkitektúrs |
| Kvikmyndasjóður | Kvikmyndamiðstöð Íslands |
| Launasjóðir listamanna | RANNÍS |
| Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar | Þjóðminjasafn Íslands |
| Minningarsjóður Ingibjargar G. Johnson | Þjóðminjasafn Íslands |
| Minningarsjóður Philip Verrall | Þjóðminjasafn Íslands |
| Myndlistasjóður | Myndlistarráð |
| Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM) | Snorrastofa |
| Safnasjóður | Safnaráð |
| Starfsemi atvinnuleikhópa/Sviðslistasjóður | RANNÍS |
| Starfsemi áhugaleikfélaga | Bandalag íslenskra leikfélaga |
| Starfsmenntunarsjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (STASÍ) | Sinfóníuhljómsveit íslands |
| Stuðningur við einkarekna fjölmiðla | Fjölmiðlanefnd |
| Styrkir Snorra Sturlusonar | Stofnun Árna Magnússonar |
| Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur | Listasafn Íslands |
| Styrktarsjóður Richards Serra | Listasafn Íslands |
| Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur | Listasafn Íslands |
| Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn | Norræna félagið |
| Tónlistarsjóður | RANNÍS |
| Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) | ÚTÓN |
| Verkefnasjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ) | Sinfóníuhljómsveit Íslands |
| Þjóðhátíðargjöf Norðmanna | Menningar- og viðskiptaráðuneyti |
3. Hvaða lög og reglur gilda um útdeilingu fjármuna úr hverjum sjóði?
Þau lög og reglur sem gilda um útdeilingu fjármuna úr hverjum sjóði koma fram í eftirfarandi yfirliti:
| Nafn sjóðs | Lög/reglur sem gilda um sjóðinn |
| Áslaugarsjóður | Úthlutunarreglur Áslaugarsjóðs |
| Barnamenningarsjóður Íslands | Reglur um úthlutun styrkja úr Barnamenningarsjóði frá 2019 |
| Bókasafnasjóður | Bókasafnalög, nr. 150/2012 |
| Bókasafnssjóður höfunda | Lög um bókmenntir, nr. 91/2007 |
| Bókmenntasjóður & Barnabókasjóðurinn Auður | Lög um bókmenntir, nr. 91/2007 |
| Egnersjóðurinn | Skipulagsskrá fyrir Egnersjóðinn – 5. og 6. gr. |
| Finnsk-íslenski sjóðurinn | Kulturfonden Island-Finland |
| Flugþróunarsjóður | Starfsreglur stjórnar flugþróunarsjóðs |
| Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | Lög um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, nr. 75/2011 |
| Gjöf Jóns Sigurðssonar | Lög um Gjöf Jóns Sigurðssonar |
| Grænlandssjóður | Lög um Grænlandssjóð, nr. 108/2016 |
| Heiðurslaun listamanna | Lög um heiðurslaun listamanna, nr. 66/2012 |
| Hljóðritunarsjóður tónlistar* | Reglur um hljóðritasjóð frá 2016 |
| Hönnunarsjóður | Reglur um hönnunarsjóð frá 2014 |
| Kvikmyndasjóður | Kvikmyndalög, nr. 137/2001 |
| Launasjóðir listamanna | Lög um listamannalaun, nr. 57/2009 |
| Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar | Reglur um útdeilingu fjármuna eru í skipulagsskrá sjóðsins |
| Minningarsjóður Ingibjargar G. Johnson | Reglur um útdeilingu fjármuna eru í skipulagsskrá sjóðsins |
| Minningarsjóður Philip Verrall | Reglur um útdeilingu fjármuna eru í skipulagsskrá sjóðsins |
| Myndlistasjóður | Reglugerð um myndlistarráð og myndlistarsjóð, nr. 552/2014 |
| Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM) | Reglur um starfsemi RÍM |
| Safnasjóður | Safnalög, nr. 141/2011 |
| Starfsemi atvinnuleikhópa/Sviðslistasjóður | Lög um sviðslistir, nr. 165/2019 |
| Starfsemi áhugaleikfélaga | Reglugerð um styrki til annarrar leiklistarstarfsemi en Þjóðleikhússins, nr. 1299/2013 |
| Starfsmenntunarsjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (STASÍ) | Úthlutunarreglur STASÍ |
| Stuðningur við einkarekna fjölmiðla | Lög um fjölmiðla, nr. 38/2011 |
| Styrkir Snorra Sturlusonar | Reglur nr. 1022 frá 2019 um styrki Snorra Sturlusonar |
| Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur | Sjóðurinn starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 986, 15. desember 2003 |
| Styrktarsjóður Richards Serra | Sjóðurinn starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 293, 16. júlí 1993 |
| Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur | Sjóðurinn starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 387, 15. september 1993 |
| Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn | Reglur um sænsk-íslenska samstarfssjóðinn |
| Tónlistarsjóður* | Lög um tónlistarsjóð, nr. 76/2004 |
| Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar (ÚTÓN)* | Reglur um útflutningssjóð íslenskrar tónlistar |
| Verkefnasjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ) | Úthlutunarreglur VESÍ |
| Þjóðhátíðargjöf Norðmanna | Skipulagsskrá fyrir sjóðinn Þjóðhátíðargjöf Norðmanna |
4. Hvað kostaði að starfrækja hvern sjóð árið 2022?
5. Hver var kostnaðurinn við að starfrækja hvern sjóð í hlutfalli við þá fjármuni sem var úthlutað úr sjóðnum árið 2022?
Yfirlit yfir umsýslukostnað eða kostnað við að starfrækja hvern sjóð á árinu 2022 og hlutfallið við þá fjármuni sem var úthlutað úr sjóðnum er í eftirfarandi töflu:
| Nafn sjóðs | Umsýslukostnaður 2022 | Úthlutunarfjárhæð | Hlutfall umsýslukostnaðar |
| Áslaugarsjóður | 416.060 | 0 | - |
| Barnamenningarsjóður Íslands | 5.477.331 | 94.358.000 | 5,8% |
| Bókasafnasjóður | 1.514.655 | 20.000.000 | 7,6% |
| Bókasafnssjóður höfunda | 12.102.438 | 193.800.000 | 6,2% |
| Bókmenntasjóður & Barnabókasjóðurinn Auður | 8.000.000 | 81.150.000 | 9,9% |
| Egnersjóðurinn | 33.858 | 16.929.022 | 0,2% |
| Finnsk-íslenski sjóðurinn | 0 | 2.000.000 | 0,0% |
| Flugþróunarsjóður | 980.855 | 111.594.710 | 0,9% |
| Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | 23.000.000 | 575.000.000 | 4,0% |
| Gjöf Jóns Sigurðssonar | 1.550.740 | 10.600.000 | 14,6% |
| Grænlandssjóður | 346.188 | 5.506.166 | 6,3% |
| Heiðurslaun listamanna | 24.000 | 109.193.872 | 0,0% |
| Hljóðritunarsjóður tónlistar | 5.655.618 | 63.065.000 | 9,0% |
| Hönnunarsjóður | 2.798.465 | 42.600.000 | 6,6% |
| Kvikmyndasjóður | 120.000.000 | 1.800.000.000 | 6,7% |
| Launasjóðir listamanna | 39.078.957 | 936.095.200 | 4,2% |
| Minningarsjóður Helga S. Gunnlaugssonar | 50.500 | 0 | - |
| Minningarsjóður Ingibjargar G. Johnson | 50.500 | 0 | - |
| Minningarsjóður Philip Verrall | 50.500 | 0 | - |
| Myndlistasjóður | 6.700.677 | 94.000.000 | 7,1% |
| Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM) | 4.100.000 | 30.900.000 | 13,3% |
| Safnasjóður | 4.500.000 | 224.413.000 | 2,0% |
| Starfsemi atvinnuleikhópa/Sviðslistasjóður | 13.022.866 | 186.608.750 | 7,0% |
| Starfsemi áhugaleikfélaga | 0 | 17.800.000 | 0,0% |
| Starfsmenntunarsjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (STASÍ) | 386.683 | 1.841.348 | 21,0% |
| Stuðningur við einkarekna fjölmiðla | 1.191.230 | 383.140.002 | 0,3% |
| Styrkir Snorra Sturlusonar | 0 | 1.463.795 | 0,0% |
| Styrktarsjóður Guðmundu Andrésdóttur | 0 | 0 | - |
| Styrktarsjóður Richards Serra | 0 | 0 | - |
| Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur | 0 | 0 | - |
| Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn | 0 | 2.000.000 | 0,0% |
| Tónlistarsjóður | 7.052.723 | 141.320.000 | 5,0% |
| Útflutningssjóður íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) | 1.774.736 | 60.470.000 | 2,9% |
| Verkefnasjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ) | 392.917 | 4.359.078 | 9,0% |
| Þjóðhátíðargjöf Norðmanna | 0 | 0 | 0,0% |
Vinna er hafin við endurskoðun sjóða sem heyra undir ráðuneytið og var fyrsta skrefið í þeirri vinnu sameining þriggja sjóða í nýjan tónlistarsjóð sem tekur til starfa á árinu 2024.
Nánari upplýsingar um einstaka sjóði:
Barnamenningarsjóður Íslands:
Umsýslukostnaður Barnamenningarsjóðs Íslands skiptist í umsýslugjald til Rannís, 2,8 millj. kr., og laun stjórnarmanna, 2,6 millj. kr.
Bókasafnssjóður höfunda:
Umsýslukostnaður Bókasafnssjóðs höfunda skiptist í umsýslukostnað í formi vistunarsamnings við Rithöfundasamband Íslands, laun stjórnarmanna og annan rekstrarkostnað (m.a. tölvukerfi, auglýsingar og uppgjör). Umsýslukostnaðurinn á árinu 2022 var 12,1 millj. kr. sem eru 6,2% af úthlutunarfjárhæð ársins 2022 sem var 193,8 millj. kr.
Gjöf Jóns Sigurðssonar:
Umsýslukostnaður á árinu var tæplega 1,6 millj. kr. sem eru 14,6% af úthlutunarfjárhæð ársins 2022 sem var 10,6 millj. kr. Umsýslukostnaðurinn skiptist í laun stjórnarmanna og auglýsingakostnað.
Kvikmyndasjóður:
Umsýslukostnaður við Kvikmyndasjóð er vegna ráðgjafar við mat á umsóknum og hlutdeild í almennum rekstrarkostnaði (m.a. stöðugildi við umsýslu og meðferð umsókna, húsnæði og rekstur tölvukerfa).
Launasjóðir listamanna:
Umsýslukostnaður við launasjóði listamanna skiptist í umsýslugjald til Rannís, 13,2 millj. kr., og laun stjórnarmanna, 25,8 millj. kr.
Ritmenning íslenskra miðalda (RÍM):
Umsýslukostnaður við RÍM er umsýslugjald til Snorrastofu sem hefur umsýslu með umsóknum, eftirfylgni með styrkveitingum og sér um kynningarstarfsemi vegna RÍM. Umsýslukostnaður á árinu 2022 var 4,1 millj. kr. sem eru 13,3% af úthlutunarfjárhæð ársins 2022 sem var 30,9 millj. kr.
Starfsemi atvinnuleikhópa/sviðslistasjóður:
Umsýslukostnaður við sviðslistasjóð skiptist í umsýslugjald til Rannís, 5,7 millj. kr., og laun stjórnarmanna, 7,4 millj. kr.
Starfsmenntunarsjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (STASÍ):
Umsýslukostnaður við starfsmenntunarsjóð Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árinu 2022 var tæpar 400 þús. kr. sem eru 21% af úthlutunarfjárhæð ársins 2022 sem var 1,8 millj. kr.
Tónlistarsjóður:
Umsýslukostnaður við tónlistarsjóð skiptist í umsýslugjald til Rannís, 3,8 millj. kr., og laun stjórnarmanna, 3,2 millj. kr.
Verkefnasjóður Sinfóníuhljómsveitar Íslands (VESÍ):
Umsýslukostnaður við verkefnasjóð Sinfóníuhljómsveitar Íslands á árinu 2022 var tæpar 1,8 millj. kr. sem eru 9% af úthlutunarfjárhæð ársins 2022 sem var tæpar 60,5 millj. kr.