Ferill 1191. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2106  —  1191. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kostnað Vinnumálastofnunar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.

Frá Bergþóri Ólasyni.


    Hver hefur verið kostnaður Vinnumálastofnunar frá 1. janúar 2020 þar til nú vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd? Svar óskast sundurliðað eftir árum og eftirfarandi liðum:
     1.      Leigubílaakstri og öðrum akstri eftir atvikum.
     2.      Heilbrigðisþjónustu, sundurliðað eftir þjónustuflokkum.
     3.      Sálfræðiþjónustu.
     4.      Húsnæðiskostnaði. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig húsnæðislausnir skiptast milli íbúða, herbergja, gistiheimila og eftir atvikum með öðrum hætti. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um hver þörf fyrir viðbótarbúsetuúrræði verður næstu misseri að mati ráðuneytisins.
     5.      Kostnaði vegna samninga við sveitarfélög um samræmda móttöku flóttamanna. Óskað er eftir upplýsingum um áætlaðan heildarkostnað og lengd samnings við hvert sveitarfélag.


Skriflegt svar óskast.