Ferill 1206. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2136 — 1206. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um fjölda starfa hjá hinu opinbera.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hver var fjöldi stöðugilda hjá ríkisaðilum í A1-hluta, A2-hluta, A3-hluta, B-hluta og C-hluta, samkvæmt flokkun í lögum um opinber fjármál, ár hvert á tímabilinu 2011– 2022, sundurliðað eftir aðilum og því hversu margir stjórnendur með mannaforráð voru hjá hverjum aðila?
2. Hver var fjöldi stöðugilda hjá ríkisaðilum í A1-hluta, A2-hluta, A3-hluta, B-hluta og C-hluta ár hvert á tímabilinu 2011–2022, sundurliðað eftir starfsheitum og aðilum?
3. Hver var fjöldi stöðugilda hjá sveitarfélögum ár hvert á tímabilinu 2011–2022, sundurliðað eftir sveitarfélögum og því hversu margir stjórnendur með mannaforráð voru hjá hverju sveitarfélagi?
4. Hver var fjöldi stöðugilda hjá sveitarfélögum ár hvert á tímabilinu 2011–2022, sundurliðað eftir starfsheitum og sveitarfélögum?
Skriflegt svar óskast.