Ferill 905. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2152  —  905. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Loga Einarssyni um flutning fanga.


    Við vinnslu fyrirspurnarinnar var óskað eftir upplýsingum frá embætti Fangelsismálastofnunar og embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra.

     1.      Hversu oft hafa fangar verið fluttir að norðan frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað þann 15. september 2020? Svar óskast sundurliðað eftir því hvort um ræðir gæsluvarðhaldsfanga eða aðra fanga.
    Frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað hafa samtals 11 afplánunarfangar verið fluttir til Reykjavíkur og 23 einstaklingar verið fluttir í gæsluvarðhald á Hólmsheiði á framangreindu tímabili. Samtals hafa því verið fluttir 34 einstaklingar frá því að fangelsinu var lokað.

     2.      Hversu margar ferðir hafa verið farnar til að flytja fanga frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað?
    Samtals hafa verið farnar 34 ferðir vegna fangaflutninga, eða 68 leggir á milli Akureyrar og Reykjavíkur.

     3.      Hversu margir fangar hafa verið fluttir í flugi frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað? Hversu mörg flugsæti hafa verið keypt í þeim tilgangi og hver var kostnaðurinn við það?
    Fangar eru sjaldan fluttir með flugi en þeir sem sjá um flutning koma þó stundum með flugi til Akureyrar til að sækja fanga, en embætti lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur í sumum tilfellum notið aðstoðar stoðdeildar ríkislögreglustjóra við flutning á föngum eftir að fangelsinu var lokað. Flugsæti sem keypt hafa verið eru 61 talsins og áætlaður kostnaður 1.370.248 kr.

     4.      Hversu margir fangar hafa verið fluttir í bíl frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað og hver var kostnaðurinn við það?
    Samtals hafa 25 fangar verið fluttir í bíl til Reykjavíkur og kostnaður við það áætlaður 879.000 kr.

     5.      Hversu margir lögreglumenn hafa farið í slíkar ferðir í fylgd fanga frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað?
    Samtals hafa 65 lögreglumenn farið í flutning með fanga í 578 vinnustundir og kostnaður við það áætlaður 4.864.856 kr.

     6.      Hversu mörgum klukkustundum hafa lögreglumenn varið í slík verkefni að meðaltali frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað?
    Sjá svar við 5. tölul. hér að framan.

     7.      Hver er heildarkostnaðurinn við alla flutninga á föngum frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað?
    Beinn kostnaður við flutning á föngum frá því að fangelsinu á Akureyri var lokað er áætlaður 7.114.104 kr. Þá er ótalinn sá kostnaður sem fylgir töfum á ferðum vegna ófærðar, gistinga, uppihalds og búnaðar lögreglumanna auk kostnaðar sem verður til þegar kalla þarf til fólk í aukavinnu vegna fangaflutninga og til að manna afleysingar.