Ferill 1029. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 2154  —  1029. mál.




Svar


dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Viðari Eggertssyni um afplánun í fangelsi.


     1.      Hversu langur tími leið ár hvert 2016–2022 frá því að dómur um fangelsisrefsingu var kveðinn upp þar til dómþoli hóf afplánun?
    Það athugist að inn í meðaltalsdagafjölda reiknast líka sá tími sem líður meðan áfrýjunarfrestur er í kjölfar dóms. Þá miðast taflan jafnframt aðeins við þá dóma sem hafa verið uppkveðnir og afplánun í fangelsi hefur þegar hafist.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     2.      Hversu margir fangar afplánuðu dóm í fangelsi ár hvert á sama bili?

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


     3.      Hversu margir þeirra glímdu við áfengis- eða vímuefnavanda?
    Samkvæmt upplýsingum frá meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar er viðvarandi áfengis- og vímuefnavandi varlega áætlaður hjá þriðjungi fanga.

     4.      Hversu margir þeirra glímdu við ofvirkni og athyglisbrest eða skyldar raskanir?
    Samkvæmt upplýsingum frá meðferðarsviði Fangelsismálastofnunar sýndi rannsókn árið 2009 að tæplega 50% fanga uppfylltu skimunarviðmið ofvirkni og athyglisbrests.

     5.      Hversu margir sálfræðingar, félagsráðgjafar, námsráðgjafar og sérfræðingar í meðferð við fíkn störfuðu í fangelsi ár hvert á sama bili og að framan greinir?

2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Sálfræðingar 2,4 3,1 3,1 3,6 3,3 2,4 2,7
Félagsráðgjafar 2,1 2,5 1,9 3,0 2,3 2,5 2,7
Meðferðarfulltrúar 1,7 1,3 1,0 1,0 1,0 1,5 1,5
Samtals 6,2 6,9 6,0 7,6 6,6 6,4 6,9