Ferill 1006. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2155 — 1175. mál.
Svar
samstarfsráðherra Norðurlanda við fyrirspurn frá Andrési Inga Jónssyni um rétt til fæðingarorlofs á Norðurlöndum.
1. Telur ráðherra það vera í samræmi við markmið um að Norðurlönd verði samþættasta svæði heims að misjafnt sé hvort réttur til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks flytjist með verðandi foreldrum eftir því hvort flutt er til Íslands eða frá Íslandi?
Almennt hefur flutningur verðandi foreldra til eða frá Íslandi ekki áhrif á rétt viðkomandi foreldris til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks sem foreldrið hefur áunnið sér í hlutaðeigandi norrænu ríki, oftast því ríki sem flutt er frá. Því má segja að almennt flytjist réttur foreldra til fæðingarorlofs eða fæðingarstyrks með verðandi foreldrum milli norrænna ríkja, þ.m.t. í þeim tilvikum þegar verðandi foreldrar flytja til eða frá Íslandi.
Hins vegar getur komið upp sú staða að foreldri sem hefur áunnið sér rétt í einu norrænu ríki flytji til annars norræns ríkis þar sem réttur til foreldraorlofs eða fæðingarstyrks er ríkari/ lakari en í því ríki sem flutt er frá og ávinnslan hefur farið fram í. Þykir slíkt eðlilegt þar sem ekki er í gildi eitt sameiginlegt fæðingarorlofskerfi innan allra norrænna ríkja.
2. Hvað hefur verið gert eða er ráðgert að gera til að draga úr þeim hindrunum sem felast í því að réttindi tengd barneignum falli niður við búferlaflutninga milli norrænna ríkja?
Almennt er unnið að því á Norðurlöndunum að draga úr hindrunum sem einstaklingar kunna að mæta við búrferlaflutninga milli norrænna ríkja og má í því sambandi nefna Norðurlandasamning um almannatryggingar, sem gerður var í Bergen 12. júní 2012. Þá hafa Norðurlönd innleitt reglugerðir og tilskipanir Evrópusambandsins sem meðal annars varða frjálsa för milli ríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Norræna stjórnsýsluhindranaráðið, sem skipað er af samstarfsráðherrum Norðurlandanna, vinnur að afnámi stjórnsýsluhindrana milli landanna. Ráðið vinnur nú að lausn á fjórða tug hindrana ásamt fimm þemahindrunum sem ná yfir stærri málaflokka. Ráðið er ekki með hindranir tengdar fæðingarorlofi í vinnslu um þessar mundir.